top of page
Search


CAMEMBERT BITAR & PUMPKIN SPICE EPLA SPRITZ
Tvær einfaldar og ótrúlega góðar uppskriftir sem passa fullkomlega saman á notalegum haust- og vetrarkvöldum, hvort sem það er saumaklúbbur, vinkonuhittingur eða þegar von er á góðum gestum. Pumpkin spice epla spritz Ferskur og ljúffengur óáfengur kokteill með eplasafa, heimagerðu pumpkin spice sírópi og áfengislausu freyðivíni frá Kylie Minogue. Sírópið gefur drykknum ljúfan keim af hlýjum kryddum á meðan freyðivínið og sítrónusafinn gera hann ferskan og léttan. Skemmtilegur


SPICY DEVIL'S SOUR
Þessi kokteill er klár í Halloween-partýið! Ferskt lime, granatepli og Cointreau Spicy með smá chili hita, mjúkri froðu og djöflahornum úr chilipipar. Í eitt glas 2 cl gin 3 l Cointreau Spicy 4 cl granateplasafi 2 cl safir úr lime 1 cl sykursíróp 2 cl gerilsneydd eggjahvíta eða aquafaba Klakar 2 rauðir chilipiprar til skrauts Á glasbrúnina 1 tsk. Tajín 2 tsk. fínn sykur Lime bátur Aðferð Blandið Tajín og sykri saman á litlum diski. Vætið hálfa glasbrúnina með lime og dýfið lé


HALLOWEEN FRENCH 75
Fullkominn kokteill fyrir Halloween partýið! Þessi er bæði ótrúlega góður og skemmtilegur í framreiðslu! Brómberja- og ginblanda í sprautum sem hver og einn sprautar út í sitt glas af Prosecco. Brómberjasíróp 2 dl sykur 2 dl vatn 1 lítið box af ferskum brómberjum frá Driscoll’s (125 g) Ginblanda (fyrir 1 skammt en dugar í ca. 4 sprautur) 3 cl gin 3 cl brómberjasíróp 2 cl sítrónusafi 4 sprautur (keypti í Tiger) Kylie Minogue Prosecco 1. Setjið sykur, vatn og brómber í pott. 2.


SPICY JARÐARBERJA- & BASIL SPRITZ
Þessi áfengislausi kokteill er ferskur, örlítið sætur með mildum hita frá chilihunangi og fullkominn með sumarlegu antipasto rétti eins og t.d. þessum. Crodo Lemon Soda gefur honum léttan sítruskeim og fallega freyðingu. Hráefni (2 glös) 4–6 jarðarber 12–16 fersk basilikulauf 30 ml ferskur sítrónusafi 60 ml kalt vatn 1½ msk chilihunang frá Olifa Klakar Crodo Lemon Soda eftir smekk Aðferð Setjið jarðarber, basiliku, sítrónusafa, vatn og chilihunang í kokteilahristara. Stappið


FERSKJU SPRITZ
Léttur, ferskur og sumarlegur kokteill með sætum ferskjum, freyðandi Kylie Minogue Prosecco og örlitlu beisku tvisti frá Galliano Amaro Bitter. Fullkominn með góðum smáréttum eða á hlýjum sumardegi. Fyrir einn drykk 2–3 ferskjusneiðar 60 ml Kylie Minogue Prosecco 30 ml Galliano Amaro Bitter 30–60 ml Sprite 1 appelsínusneið Klakar Aðferð Fyllið stórt vínglas af klaka. Bætið ferskjusneiðunum út í og þrýstið þeim létt með skeið til að losa aðeins um safann. Hellið Galliano Amaro


SPICY PASSION MARGARITA
Margarita er svo sumarlegur kokteill og hér er drykkurinn extra ljúffengur með jalapeno og ástaraldin. Svo ljúffeng blanda sem þið verðið að prófa! Elska svona "spicy" kokteila. 1 drykkur 50 ml Los Tres Toños Blanco tequila 30 ml Cointreau 1 ástaraldin (passion fruit) 25 ml ferskur límónusafi 10 ml sykursíróp 2–4 jalapeno sneiðar Tajín á glasbrúnina Aðferð Nuddið límónubát á glasbrúnina og veltið henni upp úr Tajín. Skafið kvoðuna úr ástaraldininu og setjið í hristarann ásamt


JARÐARBERJA- & BASIL MARGARITA
Ferskur, litríkur og ómótstæðilega góður drykkur. Blanda af sætum jarðarberjum, basilíku og klassísku margaritu bragði. Ótrúlega bragðgóður og sumarlegur drykkur. Fyrir einn kokteil 60 ml tequila 30 ml safi úr lime 30 ml Cointreau 1 tsk hunang 4–5 Driscoll’s jarðarber, skorin í tvennt 4 fersk basilíku lauf Klakar Fyrir glasbrúnina: Gróft salt Lime til að bleyta glasið Aðferð: Byrjið á að væta glasbrúnina með lime báti og dýfið í salt ef þið viljið saltkant. Setjið jarðarber


RÓSAVÍNS SANGRÍA BERJUM & FERSKJUM
Ljúffeng og létt sangría með rósavíni, Cointreau, jarðarberjum, hindberjum, appelsínu, hunangi og smá sódavatni. Fullkomin til að njóta í góðum félagsskap á sumrin eða bara þegar ykkur langar í eitthvað ljúffengt og fagurt í glasi. 1 flaska Adobe Rosé Reserva (750 ml) Safi úr 1 appelsínu (ca. ½ dl) 1–2 ferskjur, skornar í þunnar sneiðar 2 dl Driscoll’s jarðarber, skorin í sneiðar 1-2 dl Driscoll’s hindber 4 msk Cointreau (má minnka fyrir mildari útgáfu) 2 msk hunang (smakkið


HINDBERJAKOKTEILL
Einfaldur og bragðgóður kokteill með ljúffengri froðu og hindberjabragði. Hann inniheldur Cointreau, fersk hindber, lime, eggjahvítu, sódavatn og klaka. Hann hefur allt sem mér finnst best við kokteila. Sætt og súrt með froðu. Smá tips: Ef að þið viljið extra mikla froðu þá er geggjað að hrista kokteilinn fyrst án klaka, bæta síðan klökum saman við og hrista aftur. Algjört nammi! 1 kokteill 4 cl Cointreau 5 hindber frá Driscoll’s 1,5 cl safi úr lime 1 eggjahvíta Klakar 4 cl


JÓLA COSMO 75
Ljúffengur jólakokteill með heimagerðu trönuberjasírópi Fyrir mér snýst fullkominn jólakokteill um að sameina fallega liti, góð hráefni og auðvelda aðferð. Heimagerða trönuberjasírópið lyftir þessum drykk á annað level og er líka hægt að nota í aðra drykki eða jafnvel á eftirrétti. Þetta er kokteill sem er ferskur, jólalegur og með smá freyðandi lúxus. Fyrir einn kokteil: 2 cl gin 2 cl Cointreau 2 cl trönuberjasíróp 2 cl ferskur lime-safi Klakar eða stór klaki með rósmarín og


COSMOPOLITAN
Klassískur cosmopolitan sem rennur ljúflega niður. Drykkurinn samanstendur af Cointreau, vodka, trönuberjasafa og lime. Mér finnst gaman að drekka hann í fallegu glasi en það minnir mig aðeins of mikið á Carrie Bradshaw (ég er búin að horfa óhóflega mikið á Sex and the City í gegnum tíðina). Mæli með að skála við skvísurnar í ykkar lífi með þessum kokteil. 1 kokteill 3 cl Cointreau 4 cl Vodka 4 cl trönuberjasafi 2 cl safi úr lime 1 cl sykursíróp (má sleppa) Klakar Sykursíróp


WHISKEY SOUR MEÐ CHILI
Whiskey sour með smá twisti. Bourbon viskí, sítróna, eggjahvíta, sykursíróp með chili og fullt af klökum gerir drykkinn svo einstaklega bragðgóðan, súran, sætan og freyðandi. Chili setur svo punktinn yfir i-ið fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt og spennandi. Svo er líka gott að nota sírópið í aðra drykki t.d. mojito. Ef þið viljið gera klassískan Whiskey sour þá er hægt að sleppa chili. Skál til ykkar og njótið í botn! 1 kokteill 6 cl Jeam Beam Bourbon Whiskey 3 cl safi ú


JÓLA COSMO
Vá vá vá, hvað þessi kokteill er bragðgóður og jólalegur með góðri froðu. Cointreu, möndlulíkjör, trönuberjasafi, sykursóp, lime og eggjahvíta. Geggjað að skála í þessum yfir hátíðirnar. 2 kokteilar 10 cl trönuberjasafi 5 cl Cointreau 5 cl Amaretto Bols Amsterdam 4 cl sykursíróp 4 cl safi úr lime 1 egg (eggjahvíta) 2 kirsuber úr krukku Aðferð Hellið trönuberjasafa, Countreau, Amaretto, sykursírópi, limesafa og eggjahvítu í hristara og hristið í 10-15 sekúndur. Bætið klökum sa


TYRKISK PASSOA
Það er svo gaman að bjóða uppá girnilega kokteila! Að þessu sinni er helgarkokteillinn ekki af verri endanum en hann bragðast eins og besta sælgæti! Ég gerði hann í samstarfi við Innnes og hann minnir á brjóstsykurinn góða sem er bleikur og svartur að lit og hefur verið vinsæll lengi. Passoa, romm, trönuberjasafi, klakar og tyrkisk peber er mjög góð blanda og gerir þennan kokteil hættulega góðan! Mæli klárlega með að skála í þessum um helgina. Uppskrift að einum kokteil 3 cl


BRÓMBERJA MARGARITA
Hvernig væri að skála um helgina í ljúffengum kokteil í tilefni hrekkjavökunnar? Kokteillinn samanstendur af Cointreau, Mezcal, brómberjum, timían, lime og sírópi og bragðast ótrúlega vel. Brómberin gera kokteilinn sérlega ferskan en gefa honum einnig drungalegt yfirbragð sem á vel við á hrekkjavökunni. Einn kokteill 5-6 brómber 2 fersk timían strá 2 cl safi úr lime 2 cl sykursíróp 2 cl Cointreau 5 cl Mezcal Klakar Skraut á glas 1 tsk sjávarsalt 1 tsk skógarberjate Sykursíró


SANGRÍA
Sangría er svo frískandi og gómsætur drykkur sem er tilvalinn til að bera fram í góðra vina hópi. Þótt sumarið sé búið þá má svo sannarlega njóta sangríu og skella í spænska veislu sem jafnvel inniheldur ljúffenga tapas rétti. Mjög einfalt að útbúa sangríu, eina sem þú þarft er stór kanna, hráefnið og sleif. 1 epli 1 lime 1/2 sítróna 1/2 appelsína 2 litlar nektarínur 60 ml sykursíróp 60-70 ml Cointreau 1 flaska Adobe Reserva Merlot rauðvíni 2 dl límónaði, Sprite eða 7 Up Klak


COINTREAU SPRITZ
Kokteill sem er sko sannarlega sumarlegur og ljúfur. Frískandi og bragðgóður með appelsínukeim en hann innheldur Cointreau appelsínulíkjör, prosecco, sódavatn, appelsínu og fullt af klökum. Mjög einfaldur og þarf ekkert að hrista, bara að hella í glas og njóta. Ég vona að þið njótið með drykknum og skál til ykkar allra. 1 kokteill 15 ml Cointreau 1 dl Prosecco 50 ml sódavatn Appelsínusneið Nóg af klökum Aðferð: Fyllið glas með klökum og hellið Cointreau út í. Hellið svo freyð


JARÐARBERJA GIN & TÓNIK
Jarðarberja gin og tónik er ljúffengur og ferskur drykkur, jarðarberin gefa svo gott, sætt og ferskt bragð í drykkinn. Sumarlegur drykkur sem ég mæli með að þið prófið. 1 drykkur 2-3 fersk jarðarber 5 cl Martin Miller’s gin 1 cl sykursíróp 2 dl tónik Klakar Lime sneið Aðferð Byrjið á því að merja jarðarberin og blandið þeim saman við sykursíróp. Hellið jarðarberjunum í gegnum sigti í hátt glas. Bætið við gini, tónik og hrærið varlega saman. Bætið klökum útí og lime sneið. Njó


BLEIKUR PARTÝ DRYKKUR
Við héldum við skemmtilegt partý í vinnunni og buðum uppá ljúffengan freyðivíns- og gin jarðarberjadrykk með candy floss ásamt dásamlegum köku-og jarðarberja bakka. Drykkurinn var svo góður og einfaldur! Ég útbjó jarðarberja-og ginblönduna daginn áður, setti í flösku og geymdi inn í ísskáp. Svo helti ég blöndunni í glös, bætti freyðivíni útí og skreytti með candy floss. Ef að þið eruð með veislu eða partý á næstunni þá er þessi kokteill tilvalinn! 1 drykkur 3 cl Roku gin 2 cl


GIN FIZZ
Mínir uppáhalds kokteilar eru freyðandi, súrir og sætir eins og þessi hér. Eggjahvítan og sódavatnið gerir extra froðu! Passið bara að hrista drykkinn vel. Ég mæli líka með að þið útbúið sykursíróp, það er ekkert mál og gerir kokteilinn svo góðan. Njótið vel! 1 kokteill 50 ml gin 25 ml safi úr sítrónu 25 ml sykursíróp (eða hlynsíróp) 1 eggjahvíta Klakar 50 ml sódavatn Aðferð Hellið gini, safa úr sítrónu, sykursírópi og eggjahvítu í kokteilahristara og hristið vel í 15 sekúndu
bottom of page