top of page
Search


OFNBAKAÐ CROISSANT MEÐ JARÐARBERJUM OG RJÓMAOSTI
Gómsætur réttur sem er tilvalinn í sunnudagsbrönsinn, saumaklúbbinn, vinahittinga eða jafnvel í babyshower. Ofnbakað croissant með jarðarberjum, rjómaosti og toppað með hlynsírópi. Ljúfur réttur sem er sniðugt að skella í daginn áður form og baka morguninn eftir. Passar vel með ísköldu Prosecco eða jafnvel mímósu. 8 croissant 4 egg 2 dl nýmjólk 1 tsk vanilludropar 2 msk hlynsíróp 1/2 tsk kanill 1/4 tsk salt 150 g Philadelphia rjómaostur 400 g Driscolls jarðarber, skorin í bit


MÖNDLU CROISSANT
Hvað er ljúffengra en nýbakað möndlu croissant með kaffibollanum? Hér kemur uppskrift að einföldu möndlu croissant sem passar sérlega vel með sunnudagskaffinu. Croissant fyllt með dásamlegri möndlufyllingu og bakað inn í ofni. Ég elska að panta mér möndlu croissant á kaffihúsi og hef lengi ætlað að útbúa svona sjálf. Pinterest hjálpaði mér svo að setja saman þessa ljúffengu uppskrift. Þið sælkerarnir verðið að prófa þetta. 4 croissant 40 g smjör, við stofuhita ½ dl sykur 1 d
bottom of page