top of page
Search


HEITUR HUNANGS- & HAFRA KOKTEILL
Hvað er betra en ljúffengur og heitur kokteill sem iljar manni kuldanum? Heit haframjólk með hunangi og kryddblöndu, viskí og Cointreau gerir þennan kokteil svo bragðgóðan og jólalegan. Smá appelsínukeimur, kryddaður og sætur kokteill. Mæli með að nota ikaffe haframjólkina frá Oatly í drykkinn. Hún freyðir svo vel og er bragðgóð. Ég nota mjólkurflóara til að flóa mjólkina en það er ekkert mál að flóa mjólkina í potti. Ekta drykkur til að útbúa þegar þið fáið gesti í heimsókn
bottom of page