top of page
Search


AFFOGATO
Affogato eftirréttakokteill er ómótstæðilega góður og ef þú ert kaffiunnandi þá áttu líklegast eftir að elska hann. Affogato er vinsæll ítalskur eftirréttur sem inniheldur espresso skot og ís. Hér kemur hann í fullorðinsbúningi og inniheldur kaffilíkjör og vodka og er toppaður með rifnu súkkulaði. Fyrir einn 30 ml espresso frá Sjöstrand (1 espresso skot) 5 cl kaffilíkjör 2 cl vodka 1 kúla vanilluís Rifið dökkt súkkulaði Aðferð Byrjið á því að útbúa eitt espresso skot í glas.


SÚKKULAÐI ESPRESSO MARTINI
Gómsætur espresso martini með súkkulaði líkjöri sem gerir drykkinn svo ótrúlega bragðgóðan! Einn kokteill 30 cl Tobaco gold súkkulaði líkjör 30 cl vodka 30 cl espresso kaffi 15 cl sykursíróp Klakar Aðferð : Hristið saman Tobaco gold, vodka, espresso kaffi, sykursírópi og klaka í kokteilahristara í 15 – 20 sekúndur. Hellið í fallegt glas í gegnum sigti og njótið! Sykursíróp Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til h


HÁTÍÐAR IRISH COFFEE
Það er eitthvað svo notalegt að fá sér heitan og ljúffengan drykk í skammdeginu þegar farið er að kólna úti. Irish coffee er þá sannarlega viðeigandi en hann er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hér kemur uppskrift að slíkum drykk í hátíðarbúningi en ég nota Fireball whiskey líkjör með heitu kanilbragði sem gerir drykkinn svo einstaklega ljúfan. Fyrir einn 6 cl Fireball líkjör 250 ml kaffi 2 tsk púðursykur Rjómi Súkkulaðispænir Kanill Aðferð Blandið saman púðursykri og kaffi í glas
bottom of page