top of page

AFFOGATO

  • Jan 1
  • 1 min read

Affogato eftirréttakokteill er ómótstæðilega góður og ef þú ert kaffiunnandi þá áttu líklegast eftir að elska hann. Affogato er vinsæll ítalskur eftirréttur sem inniheldur espresso skot og ís. Hér kemur hann í fullorðinsbúningi og inniheldur kaffilíkjör og vodka og er toppaður með rifnu súkkulaði. 


Fyrir einn 30 ml espresso frá Sjöstrand (1 espresso skot) 5 cl kaffilíkjör 2 cl vodka 1 kúla vanilluís Rifið dökkt súkkulaði

Aðferð

  1. Byrjið á því að útbúa eitt espresso skot í glas.

  2. Hellið kaffilíkjöri og vodka útí og hrærið saman.

  3. Setjið kaffiblönduna í fallegt glas og toppið með einni kúlu af vanilluís og rifnu súkkulaði. Það er gott að borða þetta með skeið en annars er líka hægt að drekka hann. Mmmm… og njóta! :)

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page