top of page
Search


ÍSTERTA MEÐ JARÐARBERJUM & DAIM
Þessi klassíska og ljúffenga Daim ísterta sem mamma gerir svo oft en í aðeins öðruvísi búning. Ég einfaldaði aðeins með því að kaupa tilbúinn ís. Marengsbotn með möndlum sem minnir á sörur, rjómaís, stökkt Daim og fersk jarðarber. Fullkomin terta til að gera fyrirfram og geyma í frysti. Botn 3 eggjahvítur 150 g sykur 150 g saxaðar möndlur Fylling 1 stórt box vanillu rjómaís (700 g) 3–4 Daim plötur 150 g Driscoll’s jarðarber Til skrauts Jarðarber & saxað Daim Aðferð Hitið ofni


GRILLAÐAR NEKTARÍNUR
Grillaðar nektarínur með haframulningi, Dumle karamellusósu og ís er afskaplega ljúffengur og sumarlegur eftirréttur. Tilvalið að skella í þetta þegar ferskar og gómsætar nektarínur eru til í verslunum á vorin og sumrin. Það er eitthvað svo gott að grilla ávexti á sumrin og þá sérstaklega ferskjur. Mér finnst sniðugt að útbúa haframulninginn með smá fyrirvara þannig að hann sé tilbúinn og þægilegt að taka með í ferðalögin. ½ – 1 nektarína á mann Ferskar nektarínur Hlynsíróp V


VEGAN JÓLAÍS
Bragðgóður og jólalegur ís sem inniheldur Oatly vanillusósu, Oatly rjóma og hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingu frá Rapunzel. Vá hvað þessi blanda er góð og hátíðleg. Ég toppa svo ísinn með súkkulaðisósu úr dökku súkkulaðiáleggi frá Rapunzel ásamt ferskum berjum sem gerir hann extra hátíðlegan og fallegan. 2 fernur Oatly vanillusósa 1 ferna Oatly rjómi 2 plötur hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingui frá Rapunzel ⅔ krukka dökkt súkkulaðiálegg frá Rapunzel Fersk ber


OREO ÍS
Nei halló hvað þessi ís er góður! Og hann inniheldur aðeins fimm hráefni. Ég notaði tilbúinn Oreo mulning sem er mjög þægilegt en auðvitað hægt að mylja Oreo sjálfur og nota það. Uppskriftin er afar einföld og fljótleg! Ég bar ísinn fram með heitri Dumle karamellusósu og ferskum berjum en það þarf ekki, ísinn er svo góður. Mæli mikið með! 4 eggjarauður 60 g sykur 5 dl rjómi 2 tsk vanilludropar ½ – ⅓ poki Oreo crumble (200-300 g) Dumle sósa 10 Dumle karamellur ½ dl rjómi Aðfer


AFFOGATO
Affogato eftirréttakokteill er ómótstæðilega góður og ef þú ert kaffiunnandi þá áttu líklegast eftir að elska hann. Affogato er vinsæll ítalskur eftirréttur sem inniheldur espresso skot og ís. Hér kemur hann í fullorðinsbúningi og inniheldur kaffilíkjör og vodka og er toppaður með rifnu súkkulaði. Fyrir einn 30 ml espresso frá Sjöstrand (1 espresso skot) 5 cl kaffilíkjör 2 cl vodka 1 kúla vanilluís Rifið dökkt súkkulaði Aðferð Byrjið á því að útbúa eitt espresso skot í glas.


APPELSÍNU FLOAT
Gómsætur eftirréttar kokteill með Cointreau, appelsínugosi og vanilluís. Vá vá vá hvað hann er ljúffengur! Vanilluísnn verður flöffý og freiðandi og er svo góður með appelsínubragðinu. Kokteillinn rennur ljúflega niður – algjört nammi. Mæli með þessum í sólinni eða nota hann sem einfaldan eftirrétt. Fyrir einn 5 cl Cointreau 2 dl appelsínugos (t.d. Fanta eða Appelsín) 2-3 kúlur vanilluís Aðferð Hellið appelsínugosi og Cointreau í glas og hrærið varlega saman. Setjið 2-3 kúlur
bottom of page