top of page

GRILLUÐ BER MEÐ MILKA BISCOFF & VANILLUÍS

  • Aug 5
  • 1 min read

Sumarlegur eftirréttur sem tekur enga stund að útbúa en kemur alltaf á óvart. Heit og safarík ber, bráðnað Milka Biscoff súkkulaði og ískaldur vanilluís er fullkomin blanda fyrir sumarkvöldið.

250 g jarðarber, skorin í helminga

100 g rauð steinlaus vínber

1 msk sykur

1 plata Milka Biscoff súkkulaði, brotið í bita (90 g)

Vanilluís


Aðferð

  1. Hitið grillið í meðalhita.

  2. Setjið jarðarberin og vínberin í steypujárnspönnu eða álbakka sem má fara á grillið. Stráið sykrinum yfir og blandið varlega saman.

  3. Dreifið Milka Biscoff súkkulaðinu yfir berin.

  4. Grillið í 6–8 mínútur, þar til súkkulaðið hefur bráðnað og berin eru orðin mjúk og safarík en halda enn fallegri lögun.

  5. Berið strax fram með góðum vanilluís.


Tips: Ef þið eigið ekki grill má baka eftirréttinn í ofni við 200°C í 6–8 mínútur með jafn góðum árangri.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page