top of page
Search


FRENCH TOAST MUFFINS
Það er eitthvað sérstaklega notalegt við að baka French Toast muffins. Ilmurinn af kanil og vanillu er aðeins of yndisleg! Þessi uppskrift er fullkomin í helgarbrönsinn, í kaffiboðið eða bara þegar þið viljið dekra við ykkur. Með ferskum Driscoll’s jarðarberjum og hindberjum fær rétturinn bæði ferskleika og lit, og ef þið viljið gera þetta enn betur við ykkur þá passar ískalt prosecco sérlega vel með. 260 g súrdeigsbrauð (eða fransbrauð), skorið í litla bita 4 stk egg ½ dl mj


BLÁBERJA- & SÍTRÓNUKAKA
Ótrúlega mjúk og bragðgóð kaka með fersku sítrónubragði, fullt af bláberjum og sítrónuglassúr. Fullkomin með kaffibolla, í helgarbaksturinn. 4,2 dl hveiti 2,4 dl sykur 2 tsk lyftiduft 1/4 tsk salt 2,4 dl hrein jógúrt 3 stór egg 2 tsk fínt rifinn sítrónubörkur 1/2 tsk vanilludropar 1,2 dl brætt smjör 2 tsk hveiti 2 dl bláber frá Driscoll's Sítrónuglassúr 2 dl flórsykur 2 msk sítrónusafi 1–2 msk mjólk (ef þarf) Aðferð Hitið ofninn í 200°C eða 180°C á blæstri. Klæðið ílangt form


RICOTTA PÖNNUKÖKUR MEÐ BLÁBERJUM & SÍTRÓNU
Við elskum þessar pönnukökur! Ricotta osturinn gerir þær svo mjúkar og léttar og bláberin með sítrónunni gefa þeim ótrúlega ferskt bragð. Mæli með að prófa þessar ef þið viljið eitthvað aðeins öðruvísi en þessar venjulegu pönnukökur. 2,4 dl hveiti 2 msk sykur 2 tsk lyftiduft ½ tsk salt 2 dl mjólk 85 g smjör, brætt 2 egg, aðskilin (hvítur og rauður í sitthvora skálar) 1 tsk vanilludropar 170 g ricotta ostur 1 tsk fínt rifin sítrónubörkur 150 g fersk Driscoll's bláber Aðferð: 1


OFNBÖKUÐ PÖNNUKAKA (DUTCH BABY PANCAKE)
Ofnbökuð pönnukaka eða Dutch Baby Pancake með nóg af berujum er fullkomið fyrir helgarbrönsinn þegar ykkur langar í eitthvað extra gott. Stór mjúk pönnukaka sem er létt og góð þegar hún lyftist í ofninum. Berið fram með ferskum Driscoll’s berjum, smjöri, flórsykri og sírópi. Auðvelt og fljótlegt að framkvæma. Deigið blandast á nokkrum mínútum og restin sér um sig! 6 stór egg 2,4 dl hveiti 2,4 dl nýmjólk 25 g sykur (2 msk) 2 tsk vanilludropar ¼ tsk salt 60 g smjör Berið fram m


FYLLTAR OFNBAKAÐAR KARTÖFLUR MEÐ CHILI BAUNUM & OSTI
Bakaðar kartöflur fylltar með bráðnum osti og bökuðum chili baunum? Já, takk! Fullkominn réttur sem er bæði einfaldur og ótrúlega bragðgóður. Kvöldmatur, bröns eða hádegismatur, gengur í allt saman. Ég toppa réttinn með graslaukssósu sem setur punktinn yfir i-ið. Ef þið viljið extra djúsí útgáfu, þá er beikon klárlega málið! Fyrir tvo 2 stórar bökunarkartöflur 2 msk smjör 4 msk Heinz bakaðar chili baunir Rifinn Havarti ostur eftir smekk Rifinn Cheddar ostur eftir smekk Grasla


PÁSKA OSTA-& BERJABAKKI
Hvernig væri að útbúa fallegan bakka um páskana með berjum, ostum, pönnukökum og fleira gómsætu? Bera það fram með ísköldu Cava og njóta í botn í fríinu. Fullkomið í páskabrönsinn, hittingana eða jafnvel sem forréttur. Það er auðvitað svo margt sem hægt er að nota á svona bakka en hér kemur mín hugmynd sem bragðaðist dásamlega. Punkturinn yfir i-ið eru litlu jarðarberjapönnukökurnar. Mæli með að bera þær fram með hlynsírópi sem hægt er að dýfa þeim í. 1/2 pkn jarðarber frá Dr


FRENCH TOAST MEÐ FERSKUM BERJUM
Hér kemur uppskrift að french toast með ferskum berjum, hlynsírópi og rjómaostablöndu. Geggjuð blanda og kjörið til að útbúa fyrir páskabrönsinn. Ég gerði þessa gómsætu uppskrift í samstarfi við Innnes. Ég nota fersk ber frá Driscoll’s en þau eru komin í nýjar og fallegar pappaöskjur sem innihalda minna plast og eru 100% endurvinnanlegar. Og ekki skemmir hvað berin eru virkilega bragðgóð. Rjómaostablandan passar mjög vel með en hún inniheldur Philadelphia rjómaost, hlynsíróp


JARÐARBERJA BELLINI
Bellini er dásamlegur ítalskur freyðivínsdrykkur sem smellpassar í brönsinn eða bara sem ljúfur helgarkokteill. Venjulega inniheldur kokteillinn ferskjumauk en hér er hann með jarðarberjamauki. Jarðarber og freyðivín, er til eitthvað betra? Gefur mímósu ekkert eftir og mér finnst þessi drykkur eiginlega betri. Mæli með að þið prófið. Einn drykkur 1-2 dl Lamberti Prosecco 3 jarðarber 3 cl sykursíróp Aðferð Byrjið á því að blanda saman jarðaberjum og sykursírópi með töfrasprota


COINTREAU MIMOSA
Mimosa með prosecco, appelsínusafa og Cointreau. Einfalt og gott. Passar vel að bjóða uppá með brönsinum þegar þú vilt bjóða uppá aðeins öðruvísi mimosa sem bragðast alveg ótrúlega vel! 1 kokteill 75 ml appelsínusafi 75 ml Lamberti Prosecco 1 cl Cointreu Appelsínusneið til að skreyta Aðferð Hellið appelsínusafa í fallegt glas. Því næst hellið Prosecco og Cointreau. Skreytið með appelsínusneið og njótið. Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️ // HILDUR RUT INSTAGRAM: @hildurrutingi


EINFALT EGGJASALAT
Ljúffengt og létt eggjasalat sem passar vel á hrökkbrauð með avókadó. Egg, rifinn cheddar ostur, sýrður rjómi og krydd er gómsæt blanda sem klikkar ekki. Frábært sem millimál eða í hádegismat með grófu brauði. 4 soðin egg 1 dl cheddar ostur ½ – 1 dl sýrður rjómi Krydd: Cayenne pipar, salt og pipar Aðferð Takið skurnina af eggjunum og skerið þau í litla bita með eggjaskera á meðan þau eru ennþá heit. Hrærið cheddar ostinum saman við eggin og svo sýrðum rjóma. Kryddið eftir sm


EINFALT & GOTT HRÖKKBRAUÐ
Einfalt, gott og hollt hrökkbrauð sem allir geta gert heima. Mjög gott sem millimál með hummus og grænmeti eða öðru góðu áleggi. Ég elska að eiga þetta til í krukku heima. Mæli með! 1,5 dl Rapunzel sesamfræ 1,5 dl Rapunzel graskersfræ 1 dl Rapunzel sólblómafræ 1 dl Rapunzel gróft haframjöl 3,5 dl gróft spelt 1 ¼ dl Filippo Berio ólífuolía 2 dl vatn Saltflögur eftir smekk Aðferð Blandið öllum hráefnunum saman nema saltinu. Dreifið blöndunni á bökunarpappír og fletjið þunnt út


RÆKJUSALAT MEÐ RISARÆKJUM
Dásamlegt rækjusalat sem er aðeins öðruvísi en þetta klassíska. Það inniheldur risarækjur, egg, Heinz majónes, steinselju, salt og pipar. Það er skemmtileg tilbreyting að nota risarækjur en þær eru skornar smátt sem gerir áferðina svo góða. Mæli með að bera þetta fram á ristuðu súrdeigsbrauði eða öðru góðu brauði með avókadó og sítrónusafa. 350 g frosnar risarækjur, óeldaðar Ólífuolía 5 soðin egg 1/2 – 1 dl Heinz majónes (eða eftir smekk) Chili flögur, salt og pipar 1 msk f


SHAKSHUKA MEÐ RICOTTA OSTI
Afar gómsætur réttur sem er tilvalinn í brönsinn. Þetta er nú alls ekki hefðbundinn Shakshuka réttur en mér finnst þessi útgáfa miklu...


CHIA GRAUTUR MEÐ GRÍSKRI JÓGÚRT, DÖÐLUM & MÖNDLUSMJÖRI
Ljúffengur chia grautur sem er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Chia grautur með grískri jógúrt, hunangi, bláberjum, döðlum,...


BANANA MUFFINS
Svo gómsætar muffins sem klikka ekki. Inniheldur banana kanil, haframjöl, súkkulaði og fleira góðu. Tekur enga stund að skella í þessar....


UPPÁHALDS OVERNIGHT GRAUTAR
Það er svo þægilegt að næla sér í tilbúinn graut úr ísskápnum á morgnana. Hér eru tvær dásamlegar og næringarríkar uppskriftir af...


JARÐARBERJA CHIA GRAUTUR
Fullkominn og einfaldur morgunmatur sem er þægilegur að útbúa daginn áður og hafa tilbúinn um morguninn.


OFNBAKAÐ CROISSANT MEÐ JARÐARBERJUM OG RJÓMAOSTI
Gómsætur réttur sem er tilvalinn í sunnudagsbrönsinn, saumaklúbbinn, vinahittinga eða jafnvel í babyshower. Ofnbakað croissant með jarðarberjum, rjómaosti og toppað með hlynsírópi. Ljúfur réttur sem er sniðugt að skella í daginn áður form og baka morguninn eftir. Passar vel með ísköldu Prosecco eða jafnvel mímósu. 8 croissant 4 egg 2 dl nýmjólk 1 tsk vanilludropar 2 msk hlynsíróp 1/2 tsk kanill 1/4 tsk salt 150 g Philadelphia rjómaostur 400 g Driscolls jarðarber, skorin í bit


JÓGÚRT-& EGGJABRAUÐ MEÐ BERJUM
Ljúffengt ofnbakað brauð fyllt með grísku jógúrti, eggi, kanil, hlynsírópi og ferskum berjum. Namminamm! Þetta er alveg dásamlega gott í...


RISTAÐ SÚRDEIGSBRAUÐ & SÚKKULAÐISNÚÐAR
Ljúffengur og fljótlegur bröns sem klikkar ekki. Ristað súrdeigsbrauð með ofnbökuðum tómötum, ostaeggjum og avókadó og smjördeigssnúðar fylltir með súkkulaðismyrju. Ég elska svona heimagerðan bröns á sunnudögum. Ristað súrdeigsbrauð Smjör eftir smekk Avókadó eftir smekk Sesamblanda krydd Ofnbakaðir tómatar 200-250 g kokteiltómatar 1 msk ólífuolía 2 msk ferskt oregano, smátt skorið 2 msk fersk basilika, smátt skorið Salt & pipar Egg með osti 6 egg Ólífuolía til steikingar 1 dl
bottom of page