top of page

EINFALT EGGJASALAT

  • Oct 20, 2025
  • 1 min read

Ljúffengt og létt eggjasalat sem passar vel á hrökkbrauð með avókadó. Egg, rifinn cheddar ostur, sýrður rjómi og krydd er gómsæt blanda sem klikkar ekki. Frábært sem millimál eða í hádegismat með grófu brauði. 

4 soðin egg 1 dl cheddar ostur ½ – 1 dl sýrður rjómi Krydd: Cayenne pipar, salt og pipar

Aðferð

  1. Takið skurnina af eggjunum og skerið þau í litla bita með eggjaskera á meðan þau eru ennþá heit.

  2. Hrærið cheddar ostinum saman við eggin og svo sýrðum rjóma.

  3. Kryddið eftir smekk og berið fram með avókadó og hrökkrbauði.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page