top of page
Search


TACO HRÍSGRJÓN Á EINNI PÖNNU
Einfaldur og bragðgóður kvöldmatur sem er fullkominn á annasömum virkum dögum. Allt eldað á einni pönnu og toppað með avókadó, sýrðum rjóma, kóríander og stökkum nachosflögum. Svo er hann ekki síðri daginn eftir og tilvalinn í nesti. 500 g nautahakk 1 msk ólífuolía 1 laukur 1 rauð paprika 2 hvítlauksrif 2 msk taco krydd 1½ msk tómatpúrra 2 ½ dl ósoðin basmati hrísgrjón 1 pkn Krónan lífrænt tómatar maukaðir (390 g) 4 dl vatn 1 1/2 tsk Oscar nautakraftur 1 pkn Krónan lífrænt sv


BUFFALO SESARVEFJUR
Ljúffeng vefja með buffalo kjúklingi, stökkum brauðteningum og sesarsalati. Fljótlegur og bragðgóður réttur sem við elskum! Fyrir tvo 2 stórar Broken Taco tortillur 16-18 bitar frosinn kornflex kjúklingur frá Ali ½-1 dl Chick-fil-A buffalo sósa Rifinn mozzarella eða pizzaostur eftir smekk 4 dl romaine-salat, gróft skorið Sesarsósa ½ dl Heinz majónes 1 dós sýrður rjómi (180 g) 1 tsk hvítlauksduft ½ tsk laukduft 2 msk sítrónusafi 1 tsk Dijon-sinnep ½ tsk Heinz Worcestershire só


GRILLAÐAR BBQ KJÚKLINGALUNDIR
Uppskrift sem er fullkomin þegar þið viljið eitthvað einfalt, fljótlegt og bragðgott af grillinu. Ljúffengar kjúklingalundir penslaðar með Heinz Sweet Sticky & Smooth BBQ sósu, kartöflur í álpappír á grillinu og köld sósa sem passar fullkomlega með. Mæli með að bera fram með fersku salati, maískólfum eða öðru góðu grænmeti. Fyrir 4 700 g kjúklingalundir 1 msk ólífuolía 1 tsk reykt paprika 1 tsk hvítlauksduft 1 tsk salt ½ tsk svartur pipar 5–6 msk Heinz Sweet Sticky & Smooth B


GRILLUÐ BLEIKJA MEÐ CAPERS SMJÖRI, STEINSELJU & SÍTRÓNU
Þessi grillaða bleikja er einn af þessum réttum sem ég geri aftur og aftur. Smjör, capers, hvítlaukur og sítróna gefa fiskinum ótrúlega gott bragð og með grilluðum kartöflum og kaldri sósu verður þetta einföld en dásamleg máltíð. 700 g bleikjuflök frá Fiskverzlun Hafliða 70 g mjúkt smjör 2 msk capers frá Gestus 2 hvítlauksrif, pressuð 3 msk fersk steinselja, smátt söxuð ½ tsk flögusalt ¼ tsk nýmalaður svartur pipar Sítróna, skorin í þunnar sneiðar Kartöflur 600–700 g kartöfl


GRILLUÐ KJÚKLINGATACOS
Ef þið ætlið að grilla þá mæli ég með að grilla kjúkling og setja í tacos. Gómsæt grilluð úrbeinuð kjúklingalæri, mjúkar tortillur, bráðinn ostur og ferskt grænmeti. Fullkomið fyrir grillveisluna eða þegar þið viljið eitthvað einfalt og virkilega gott. Fyrir 4 600–700 g úrbeinuð kjúklingalæri 1 poki Broken Taco Mild kryddblanda 1 msk ólífuolía 8–12 litlar Broken Taco tortillur Ólífuolía til að pensla Philadelphia rjómaostur Rifinn cheddar ostur 2 avókadó 1 lime Smátómatar 1 s


HEILL OFNBAKAÐUR KJÚKLINGUR MEÐ RJÓMAOSTASÓSU
Þetta er klassískur matur sem er tilvalinn á sunnudagskvöldi. Uppskrift sem ég hef margoft gert og klikkar aldrei. Safaríkur heill kjúklingur hægeldaður með lauk, gulrótum, sítrónum og hvítlauk. Síðan verður soðið í botninum að silkimjúkri rjómasósu sem er einn besti parturinn. Fullkomið með ofnbökuðum kartöflum, fersku salati og köldu hvítvíni. Fyrir 4–6 1 heill kjúklingur (ca. 2 kg) 2–3 gulrætur 2 gulir laukar 1 heill kjúklingur 1 sítróna 5 dl vatn 2 msk Oscar kjúklingakraf


ORZO MEÐ RISARÆKJUM & SÓLÞURRKUÐUM TÓMÖTUM
Silkimjúkt orzo pasta sem eldast beint upp úr bragðmiklu soði með lauk, hvítlauk, chili og sólþurrkuðum tómötum ásamt rjóma, parmesan, fersku spínati og risarækjum. Algjör bragðbomba sem er bæði einföld og ótrúlega góð. Psst… það er líka mjög gott að skipta rækjunum út fyrir kjúkling ef þið eruð meira í þannig stuði. Fyrir 3-4 450 g risarækjur frá Fiskverzlun Hafliða 16/20, afþíddar og þerraðar 2–3 msk olía af sólþurrkuðum tómötum Salt og pipar Chili flögur eftir smekk 5 hvít


FYLLTAR SÆTAR KARTÖFLUR
Þessar fylltu sætu kartöflur eru einfaldur og góður réttur sem hentar vel í kvöldmatinn. Þið fyllið mjúkar sætar kartöflur með nautahakki, rjómaostablöndu, blaðlauki, papriku, tómötum, osti og toppið með avókadó. Þægilegt að útbúa og klikkar ekki. Fyrir 2-3 2 stórar sætar kartöflur 1–2 msk ólífuolía Salt og pipar 350–400 g nautahakk 2 msk smjör út í kartöflurnar 100 g Philadelphia rjómaostur 3–4 msk sýrður rjómi ½ pimento paprika, smátt skorin 1–2 tómatar, smátt skornir ½ bla


OFNBAKAÐ RISOTTO
Eitt það þægilegasta sem ég geri þessa dagana. Ofnbakað risotto sem sér um sig sjálft á meðan kjúklingurinn eldast við hliðina. Svo auðveld og góð leið til að elda risotto. Ofsalega gott með tómat, burrata, basiliku og parmesan. Klikkar ekki! Uppskrift fyrir 4 3 dl arborio risgrjón 1 stór laukur, smátt saxaður 3 hvítlauksrif, pressuð 4 msk smjör 1 stór krukka tómata- og basilíkusósa (ca. 500–600 g) 6 dl kjúklingasoð 2 dl rifinn parmesan Kjúklingakraftur Salt og pipar 1/2 dl f


BUTTER CHICKEN
Þessi réttur er eldaður reglulega á mínu heimili og klikkar aldrei! Rjómalagaður kjúklingur í tómat og kryddblöndu sem ég ber fram með túrmerik hrísgrjónum, raita og naan brauði. Mér finnst mjög gott að para þetta með góðu rauðvíni. Ef þið hafið tíma mæli ég líka með að útbúa naan brauðið sjálf, það er extra gott og þið finnið uppskriftina hér. Fyrir 4 1 kg úrbeinuð kjúklingalæri frá Rose Poultry 2 msk garam masala 1 tsk engiferduft 1 tsk hvítlauksduft 1/2 tsk chiliflögur 1 t


HARISSA KJÚKLINGUR & HRÍSGRJÓN Á EINNI PÖNNU
Einstaklega ljúffengur og þægilegur mið-austurlenskur réttur þar sem kjúklingur og hrísgrjón eru elduð á sömu pönnu og sett inn í ofn. Ég fann þessa uppskrift í Olive Magazine og varð strax að prófa og hún klikkaði ekki. Gott að bera fram með kaldri jógúrtsósu og fersku salati. Fyrir 3-4 2½ msk ólífuolía 6 kjúklingalæri Salt, pipar, harissa krydd og hvítlauksduft eftir smekk 1 stór rauðlaukur(eða tveir litlir), þunnt skorinn 2 hvítlauksrif, pressuð 1½ msk harissa krydd 1 tsk


SÚPERNACHOS
Ofnbakað nachos með nautahakki, svörtum baunum, salsa, rjómaostablöndu, ferskum blaðlauk, tómötum, papriku og svo nóg af cheddar- og havartiosti. Það er einnig gott að bæta við maís. Toppa svo með avókadó, kóríander og smá chiliflögum. Þessi réttur er kominn beint frá mömmu og hefur verið í uppáhaldi hjá okkur lengi. Nú er hann líka fastur liður hjá mér. Einfaldur, góður og alltaf vinsæll. Fyrir 4 500 g nautahakk Krydd: 1 tsk salt, 1/2 tsk pipar 1 tsk laukduft 1 tsk hvítlauks


BBQ KÓRESKT KJÚKLINGATACOS
Tacos með kóresku twisti. Ljúffengur kjúklingur í BBQ- og gochujang sósu, með pickluðum rauðlauk, gochujang mayo, vorlauk og sesamfræjum. Það er ekkert mál að græja picklaðan lauk sjálfur og hann gerir svo ótrúlega mikið fyrir bragðið. Gochujang paste fæst yfirleitt í asískum matvöruverslunum 5-6 dl rifinn kjúklingur (ég ríf heilan tilbúinn kjúkling) 2 dl Hunts BBQ sósa 2 msk gochujang paste (Fæst t.d. í Fiska og fleiri asískum matvöruverslunum) Litlar tortillur Fínskorið hví


BBQ QUESADILLAS Á EINNI PLÖTU
Það er fátt þægilegra en að setja allt á eina ofnplötuð, baka og njóta. Þessi réttur er fullkominn þegar þið viljið deila með fjölskyldu eða vinum. Stökk tortilla að utan, nautahakk með Hunts BBQ-sósu, tómatar og bráðinn cheddar að innan. Toppa svo með sýrðum rjóma, avókadó, kóríander og fersku salati. Ísköld Corona hliðina gerir svo máltíðina enn betri. 500 g nautahakk 1 meðalstór laukur, saxaður 1 ferskt chili, saxað (eða smá chiliflögur) 1 ½ dl Hunts BBQ sósa 2 dl smátt sk


ÍTALSKAR STEIKARLOKUR MEÐ BURRATA & ARRABIATA
Súrdeigsbrauð steikt upp úr smjöri, arrabiata sósa, parmesan og smjörsteiktur laukur, bakað í ofni og toppað með burrata, klettasalati, mínútusteik, litlum tómötum og ferskri basiliku. Allt sem ítölsk samloka á að vera. Hún er djúsí, einföld og algjör comfort bomba! Borðuðum þetta með góðu ítölsku rauðvíni og það klikkaði ekki! Uppskrift fyrir 4 (2 sneiðar á mann) 3 mínútusteikur (u.þ.b. 400–450 g samtals) Ólífuolía til steikingar Salt og pipar 2 laukar Smjör til steikingar (


BLT SAMLOKA MEÐ BBQ SÓSU
Það er eitthvað við stökkt brauð, bráðinn ost, safaríkan kjúkling og stökkt beikon sem er ómótstæðilegt! Þessi BLT samloka er næsta skref upp frá klassíkinni með tvöföldum osti, Heinz BBQ sósu og Heinz majónesi sem lyftir þessu á annað level. Fyrir 2 samlokur 4 sneiðar súrdeigsbrauð 2 msk ólífuolía 4-6 sneiðar Havarti ostur 1 dl rifinn Cheddar ostur 2 msk Heinz majónes 2 msk Heinz BBQ sósa 4 stórar tómatsneiðar 1-2 kjúklingabringur, eldaðar og skornar í sneiðar 6 sneiðar stök


SESAR SALAT VEFJUR
Það er ekki að ástæðulausu að Sesar salat sé vinsælt. Stökkt beikon, safaríkur kjúklingur, parmesan og djúsí dressing er blanda sem klikkar ekki! Hér er vefju útgáfan sem er fullkomin í hádeginu eða sem léttur kvöldmatur. Ég steiki vefjuna á pönnu í lokin svo hún verði stökk og Havarti osturinn inni í honum bráðni aðeins, ótrúlega gott! Fyrir 4 stórar tortillur 1 stór romain salathaus, skorinn niður 150 g stökksteikt beikon, smátt skorið 2 kjúklingabringur, eldaðar og smátt


FYLLTAR OFNBAKAÐAR KARTÖFLUR MEÐ CHILI BAUNUM & OSTI
Bakaðar kartöflur fylltar með bráðnum osti og bökuðum chili baunum? Já, takk! Fullkominn réttur sem er bæði einfaldur og ótrúlega bragðgóður. Kvöldmatur, bröns eða hádegismatur, gengur í allt saman. Ég toppa réttinn með graslaukssósu sem setur punktinn yfir i-ið. Ef þið viljið extra djúsí útgáfu, þá er beikon klárlega málið! Fyrir tvo 2 stórar bökunarkartöflur 2 msk smjör 4 msk Heinz bakaðar chili baunir Rifinn Havarti ostur eftir smekk Rifinn Cheddar ostur eftir smekk Grasla


TURKISH PASTA
Ef þið eruð að leita að réttinum sem þið getið ekki hætt að hugsa um eftir fyrsta bita þá eruð þið á réttum stað! Þetta Turkish pasta er búið að vera allsráðandi á TikTok og ég skil svo vel af hverju! Fullkomin blanda af kryddaðri nautahakksblöndu, jógúrtsósu, smjörsósu með papriku, tómötum og steinselju. Þetta er fljótlegt, auðvelt og algjör comfort food sem allir elska, hvort sem þið eruð að bjóða í mat eða bara að dekra við ykkur sjálf. De Cecco Farfalle slaufupasta Ólífu


KRISPÍ TÚNFISKSKÁL
Fljótlegur og bragðgóður réttur sem er tilvalinn í hádeginu eða sem léttur kvöldverður. Stökk hrísgrjón, túnfiskur, japanskt majónes, Sriracha, gúrka og avókadó er ljúffeng blanda.. Ég sá þessa hugmynd á TikTok og varð strax heilluð – hún er svo góð að ég varð að deila henni með ykkur! Ef þú ert að leita að einhverju nýju og spennandi, þá er þetta fyrir þig. Fyrir einn 3 dl hrísgrjón, elduð 1-2 msk sojasósa 1 msk sesamolía 1 msk Tabasco Sriracha sósa eða magn eftir smekk 1 tú
bottom of page