top of page

FYLLTAR SÆTAR KARTÖFLUR

  • May 4
  • 1 min read

Updated: May 5

Þessar fylltu sætu kartöflur eru einfaldur og góður réttur sem hentar vel í kvöldmatinn. Þið fyllið mjúkar sætar kartöflur með nautahakki, rjómaostablöndu, blaðlauki, papriku, tómötum, osti og toppið með avókadó. Þægilegt að útbúa og klikkar ekki.


Fyrir 2-3

2 stórar sætar kartöflur

1–2 msk ólífuolía

Salt og pipar

350–400 g nautahakk

2 msk smjör út í kartöflurnar

100 g Philadelphia rjómaostur

3–4 msk sýrður rjómi

½ pimento paprika, smátt skorin

1–2 tómatar, smátt skornir

½ blaðlaukur, smátt skorinn

1–1½ dl rifinn cheddar ostur

1 avókadó frá Náttúru

Smá ferskur kóríander

Safi úr lime


Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 190°C. Skerið sætu kartöflurnar í tvennt, setjið á bökunarplötu og dreypið yfir þær ólífuolíu, salti og pipar. Bakið í um 40–50 mínútur eða þar til þær eru mjúkar

  2. Á meðan kartöflurnar bakast, steikið nautahakkið á pönnu þar til það er fulleldað. Kryddið með salti og pipar.

  3. Blandið saman Philadelphia rjómaosti og sýrðum rjóma þar til það verður mjúk og kremkennd blanda.

  4. Takið kartöflurnar úr ofninum og setjið smjör ofan í þær á meðan þær eru heitar svo það bráðni vel.

  5. Setjið nautahakkið ofan í kartöflurnar og smyrjið rjómaostablöndunni yfir.

  6. Dreifið papriku, tómötum og blaðlauki yfir og toppið með rifnum cheddar osti.

  7. Setjið aftur inn í ofn í 5-7 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og aðeins gylltur

  8. Toppið með avókadó, ferskum kóríander og safa úr lime.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page