FYLLT GRASKER MEÐ KJÚKLINGABAUNUM & KÍNÓA
- Jan 2
- 1 min read
Hér er á ferðinni afar gómsætur grænmetisréttur sem er auðvelt að útbúa. Ofnbakað butternut squash (grasker) fyllt með kjúklingabaunum frá Oddpods, kínóa frá Quinola, lauk, hvítlauk, sveppum, salvíu, fetaosti og pistasíum. Graskerið er einnig dásamlega gott og mjög næringarríkt, inniheldur mikið af góðum trefjum og A-vítamíni.

Uppskrift fyrir 4 2 butternut squash (grasker) Ólífuolía eftir smekk Salt & pipar eftir smekk ½ tsk þurrkuð salvía 1 lítill laukur, smátt 6 meðalstórir sveppir 2 hvítlauksrif, pressuð eða rifin 1 pakkning kjúklingabaunir frá Oddpods 1 tsk þurrkuð salvía eða fersk Salt og pipar eftir smekk 2 dl Quinola Golden Vegetables (kínóa) Stappaður fetaostur eftir smekk 2 msk pistasíukjarnar, smátt saxaðir
Bera fram með: Klettasalat Ólífuolía Stappaður fetaostur
Aðferð
Skerið graskerin í tvennt og hreinsið úr þeim fræin. Skerið raufar í þau og dreifið ólífuolíu, salvíu, salt og pipar.
Bakið graskerin inn í ofni í 40 mínútur við 200°C á blæstri.
Skerið lauk og sveppi smátt og steikið upp úr ólífuolíu ásamt hvítlauki.
Bætið við kjúklingabaunum, salvíu, salti og pipar. Blandið öllu vel saman.
Skafið aðeins meira úr graskerinu til að útbúa pláss fyrir fyllinguna.
Fyllið hvern og einn graskershelming með ½ dl kínóa, kjúklingabauna blöndunni, stöppuðum fetaosti eftir smekk og smátt söxuðum pistasíukjörnum.
Bakið inn í ofni í 8-10 mínútur við 200°C.
Toppið svo með klettasalati, góðri ólífuolíu og stöppuðum fetaosti. Einni gott að bera fram með spicy mayo eða annarri sósu.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Danól















Comments