top of page
Search


BRUSCHETTUR MEÐ BURRATA & BERJUM
Bruschettur sem bragðast alveg dásamlega. Þær eru svo ferskar, sætar og bragðgóðar með burrata osti, hindberjum, brómberjum, hunangi og pistasíum. Tilvalið að bera fram í veislum eða sem forrétt. Svo er um að gera að njóta með ísköldu cava rosé, það passar mjög vel með. 24 sneiðar af súrdeigs baguette Ólífuolía 2 burrata ostar 1 box brómber frá Driscolls 2 box hindber frá Driscolls Hunang 2-3 msk smátt skornar pistasíur Aðferð 1. Dreifið baguette sneiðum á ofnplötu þaktri bök


OREO MARENGSBOMBA
Geggjuð marengsbomba með Oreo crumbs, Daim og nóg af ferskum berjum. Ég bar þessa köku fram í barnaafmæli og vá hvað hún var ljúffeng. Svona tertur eru alltaf vinsælar í veislum og ég mæli mikið með þessari. Marengs 4 eggjahvítur 200 g sykur 2 dl Oreo crumbs Rjómafylling 4 dl rjómi 2 dl Oreo crumbs 200 g jarðaber 150 g hindber Daim sósa 2 stk lítil Daim (56 g) 1 dl rjómi Toppa með: 200 g jarðaber 150 g hindber ½-1 stk lítið Daim (28 g) ½-1 dl Oreo crumbs Aðferð Þeytið eggin


BROWNIES MEÐ MILKA DAIM SÚKKULAÐI
Hér kemur uppskrift að mjög ljúffengum brownies eða brúnkum með Milka Daim súkkulaði. Passar vel sem eftirréttur með ís eða rjóma. Mér finnst svo gott þegar kakan er smá blaut eða „chewy“ að innan og aðeins volg. Þessi uppskrift klikkar aldrei og Milka Daim súkkulaðið setur punktinn yfir i-ið. 200 g smjör 5 dl sykur 3 msk Cadburys kakó 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt 1 msk vanilludropar 4 egg 3,5 dl hveiti 1 plata Milka Daim súkkulaði Aðferð Bræðið smjörið á vægum hita og hrærið s


GULRÓTARBOLLAKÖKUR
Dúmjúkar gulrótarkökur með dásamlega góðu rjómaostakremi er dásamlega gott. Toppa þær síðan með pekanhnetum gerir kökurnar ennþá betri. Þessar kökur eiga eftir að klárast fljótt, það klikkar ekki hjá mér. Uppskriftin gerir 12 bollakökur 4 dl rifnar gulrætur 2 egg 1 tsk vanilludropar 1 ½ dl ólífuolía 2 ½ dl hveiti ½ tsk matasódi ½ tsk lyftiduft ¼ tsk salt 1 tsk kanill ¼ tsk engifer, ¼ tsk múskat, ¼ tsk negull 1 dl púðursykur ½ dl sykur 5-7 stk smátt saxaðar pekanhnetur 12 boll


HREKKJAVÖKU SÚKKULAÐIPITAR MEÐ POPPI & PRETZEL
Karamellupopp er fullkomin blanda af sætu og söltu og passar sérlega vel með súkkulaði og pretzel. Þessar fljótlegu heimagerðu súkkulaðiplötur eru tilvaldar fyrir hrekkjavöku, og það er auðvelt að bæta við hvítu súkkulaði og augum til að gera litla drauga! 300 g dökkt súkkulaði 100 g hvítt súkkulaði 2 dl karamellupopp frá Werther 1 dl pretzel Nammiaugu til að skreyta Aðferð Byrjið á því að skera karamellupoppið og pretzel í minni bita. Bræðið dökkt súkkulað yfir vatnsbaði eða


HREKKJAVÖKU DRAUGANAMMI
Ljúffengt hrekkjavökusælgæti sem inniheldur rice krispies, Tony’s mjólkursúkkulaði, hnetusmjör, síróp og skreytt með hvít súkkulaði draugum. Ég útbjó þessa uppskrift í samstarfi við Innnes þar sem ég nota bragðgóða Tony’s súkkulaðið í uppskriftina. Súkkulaðinu sjálfu er skipt í ójafna parta en það er gert til að endurspegla misréttið sem á sér stað við framleiðslu kakóbauna sem er svo algengt í dag. Markmiðið hjá Tony’s er að framleiða gæða súkkulaði algerlega án þrælkunar. S


BROWNIES MEÐ ÞRISTUM
„Chewy“ og ljúffengar brownies með Þristum. Þær innihalda kakó frá Kötlu og Þrista lakkríssúkkulaði sem passar sérlega vel saman. Mjög gott að bera fram með ís eða þeyttum rjóma og fullkomnar með kaffinu. 200 g smjör 5 dl sykur 3 msk kakó frá Kötlu 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt 1 msk vanilludropar frá Kötlu 4 egg 3,5 dl hveiti 1 poki Þristur Aðferð Bræðið smjörið á vægum hita og hrærið sykrinum saman við. Passið að láta ekki bullsjóða. Hellið smjörblöndunni í skál og hrærið kakó


KORNFLEX NAMMIBITAR
Að eiga þessa nammibita gerir lífið svo sannarlega ljúft um helgar og passar sérlega vel með kaffinu. Þeir eru ómótstæðilega góðir og tekur enga stund að útbúa. Hnetusmjörsbragðið er svo gott og kornflexið gerir þetta svo krönsí. Algör snilld að eiga þetta til í frystinum. Mæli með að skella í þetta um helgina. 8 dl kornflex 2-3 dl síróp ⅔ hnetusmjörkrukka, ég nota frekar þunnt og mjúkt 200 g suðusukkúlaði 40-50 g hvítt súkkulaði Aðferð Bræðið hnetusmjör og síróp í potti og b


FYLLT BRAUÐ MEÐ OSTI & GRASLAUK
Fyllt brauð eða „Pull apart“ þar sem ég sker raufar í brauðið og fylli það með nóg af osti. Baka brauðið og toga bitana út. Fullkominn puttamatur og tilvalið að bera fram í þeim veislum eða matarboðunum sem framundan eru. Fyllingin er einföld og gómsæt en hún samanstendur af Philadelphia rjómaosti með graslauk, mozzarella osti, cheddar osti, hvítlaukssmjöri og ferskum graslauk. Súrdeigsbrauð, óskorið 1 dós Philadelphia rjómaostur með graslauk/kryddi 1½ dl rifinn cheddar ostur


SJÓNVARPSKAKA
Hver elskar ekki klassísku og góðu sjónvarpskökuna a.k.a. Lazy daisy? Þessi kaka er í uppáhaldi hjá fjölskyldunni minni og ég er oft beðin um að gera þessa. Einnig er hún mín uppáhalds en ég hef þróað þessa uppskrift í gegnum tíðina. Í henni er mikið af kókoskaramellu en mér finnst hún aðalatriðið. Kakan er dásamlega mjúk, karamellan stökk og er hún afar ljúffeng með ísköldu mjólkurglasi eða góðum kaffibolla. 2 egg 150 g sykur 1 tsk vanilludropar frá Kötlu 125 g hveiti 1 tsk


CURLYWURLY BOLLAKÖKUR
Þessar gómsætu karamellu Curlywurly bollakökur eru bæði „chewy“ og bragðgóðar. Kökurnar eru svo ljúffengar að það þarf varla krem og pottþétt gott að setja deigið í kökuform eða bökunarform og baka. Uppskriftin gerir 12 bollakökur 2,5 dl hveiti 2 dl púðursykur 1 tsk lyftiduft ½ tsk salt ½ tsk matarsódi 90 g smjör, brætt 2 egg½ dl condensed milk 1 msk ólífuolía 1 tsk vanilludropar 3 Curlywurly Krem 100 g Philadelphia rjómaostur 100 g smjör við stofuhita 5 dl flórsykur 3 stk Cu


EINFÖLD AFMÆLISKAKA MEÐ KARAMELLUKREMI
Ég gerði þessa dásamlegu súkkulaðköku með karamellukremi í 2 ára afmælinu hennar Eddu. Ég notaði súkkulaðikökumixið frá Kötlu sem mér finnst svo gott og gerði mjög gott krem. Ég elska kökur en að skreyta þær hefur ekki verið mín deild. En þessi kaka heppnaðist mjög vel og það besta við hana er að hún er svo fljótleg. Ég bakaði kökubotnana daginn áður en útbjó kremið samdægurs. Skreytti hana með kreminu og rosegold kökuskrauti. Einföld og svakalega ljúffeng! Kaka (bökunarleið


LITLAR TOBLERONE PAVLOVUR
Það besta við þessar pavlovu er Toblerone súkkulaði! Ég dreifi því yfir pavlovurnar áður en ég baka þær. Svo gott! Pavlovurnar eru svo toppaðar með rjóma, brómberjum, bláberjum, ástríðu ávexti og söxuðu Toblerone. Mæli með að bera þetta fram sem eftirrétt og það mun pottþétt slá í gegn! Uppskrift að 10 litlum pavlovum 4 eggjahvítur 200 g sykur 1 tsk borðedik 1¼-1½ Toblerone 3-4 dl þeyttur rjómi Brómber eftir smekk Bláber eftir smekk 1-2 ástríðu ávöxtur Aðferð Þeytið eggjahví


QUESADILLA HRINGUR
Fylltar tortillur með kjúkling, beikoni, tómötum, blaðlauk, salsasósu og nóg af osti. Tortillurnar mynda kramarhús og er þeim svo raðað upp í hring og bornar fram með avókadó sósu. Passar sérlega vel með ísköldum bjór eða drykk. Fallegt fyrir augað og skemmtilegt og gott að borða. Ég er með þrenns konar osta og ostasósu en það má alveg leika sér með þetta og prófa annan ost eða sleppa einum. Svo er geggjað að bera þetta fram í afmælisboðum eða öðrum veislum. Uppskrift gerir 3


FERSK HABANERO SALSA ÍDÝFA
Einföld og gómsæt ídýfa með rjómaosti, ferskum tómötum, habanero Tabasco, vorlauk og kóríander. Habanero Tabasco gerir ídýfuna sannarlega sterka sem ég elska en mæli með að nota hana varlega því hún er mjög sterk og það þarf ekki mikið. Best að smakka sig áfram. Upplagt sem snarl í góða veðrinu með snakki og ísköldum Corona. 1 Philadelphia rjómaostur 250 g litlir tómatar 3 vorlaukar (2/3 dl smátt skornir) 1 msk Habanero Tabasco eða magn eftir smekk 1 tsk safi úr lime 2 msk sm


LITLAR OSTAFYLLTAR BRAUÐBOLLUR
Gómsætar fylltar brauðbollur með rjómaosti og sesamblöndu. Fullkomið með ísköldum bjór sem snakk eða forréttur. Sniðugt að bera fram í þeim veislum og matarboðum sem framundan eru. Svo finnst mér þær svo fallegar fyrir augað. Philadelphia rjómaostur með graslauk, cheddar ostur, vorlaukur og sesamblanda með smjördeigi er frábær blanda. Namm! Uppskrift að 36 litlum brauðbollum 430 g smjördeig, frosið (6 plötur) 5-6 dl rifinn cheddar ostur 1 pkn Philadelphia rjómaostur með grasl


DÁSAMLEGUR BRUSCHETTA BAKKI
Hvað er betra en dásamlegur bakki stútfullur af grilluðum bruchettum ásamt allskonar góðgæti og ískalt Prosecco rosé með? Bruschettur með þeyttum fetaosti, jarðaberjum og fíkjum og bruschettur með ferskum mozzarella, tómötum, basiliku og hráskinku. Fullkomin blanda og gaman að raða þessu fallega upp á bakka. Það er líka svo gaman að skála í fallegum glösum en þessi eru úr Heimahúsinu og fást hér. 1-2 bruschetta brauð (ég keypti súrdeigs) ½ dl ólífuolía 2 hvítlauksrif, rifin e


HEIT OSTAÍDÝFA MEÐ JALAPENO
Gómsæt ostaídýfa sem inniheldur Philadelphia rjómaost með graslauk, sýrðan rjóma, parmigiano reggiano, jalapeno og cheddar ost! Svakalega...


JALAPENO- & CHEDDAROSTASTANGIR
Mjög einfaldar og ljúffengar ostastangir með cheddar osti og jalapeno sem rífur aðeins í. Í uppskriftinni eru einungis 4 innihaldsefni...


LJÚFFENGT BRIOCHE BRAUÐ MEÐ ÞEYTTUM RICOTTA
Dúnmjúkt og bragðgott brioche brauð og þeyttur ricotta ostur með ofnbökuðum tómötum. Þegar ég fór til Berlínar um miðjan október þá fékk ég alveg dásamlegt brioche brauð með þeyttum osti. Ég hef ekki hætt að hugsa um þetta síðan og ég varð að prófa að útbúa svona sjálf. Ég leitað eftir góðri uppskrift og datt inn á þessa eftir einn af mínum uppáhalds matarbloggurum, Half baked Harvest. Þetta heppnaðist alveg ótrúlega vel og vá hvað ég mæli með að þið prófið. Þetta er smá tím
bottom of page