top of page

GULRÓTARBOLLAKÖKUR

  • Feb 1
  • 1 min read

Dúmjúkar gulrótarkökur með dásamlega góðu rjómaostakremi er dásamlega gott. Toppa þær síðan með pekanhnetum gerir kökurnar ennþá betri. Þessar kökur eiga eftir að klárast fljótt, það klikkar ekki hjá mér.


Uppskriftin gerir 12 bollakökur 4 dl rifnar gulrætur 2 egg 1 tsk vanilludropar 1 ½ dl ólífuolía 2 ½ dl hveiti ½ tsk matasódi ½ tsk lyftiduft ¼ tsk salt 1 tsk kanill ¼ tsk engifer, ¼ tsk múskat, ¼ tsk negull 1 dl púðursykur ½ dl sykur 5-7 stk smátt saxaðar pekanhnetur 12 bollakökuform

Rjómaostakrem 110 g smjör við stofuhita 1 pkn Philadelphia rjómaostur 1 tsk vanilludropar 7-8 dl flórykur

Aðferð

  1. Rífið gulræturnar smátt.

  2. Pískið eggin og blandið þeim saman við gulrætur, ólífuolíu og vanilludropa.

  3. Blandið restinni saman við.

  4. Dreifið deiginu jafnt í bollakökuformin og bakið í 18-20 mínútur við 180°C. Mér finnst gott að stinga í þær með tannstöngli til að sjá hvort að þær eru fullbakaðar.

  5. Á meðan kökurnar eru að bakast þá er gott að útbúa kremið.

  6. Kælið kökurnar í 10-15 mínútur. Setjið kremið í sprautupoka og dreifið ofan á kökurnar eftir smekk. 

  7. Dreifið smátt söxuðum pekanhnetum eftir smekk og njótið.

Rjómaostakrem

  1. Hærið rjómaosti, smjöri og vanilludropum saman í hrærivél á hröðustu stillingu þar til að blandan verður „flöffý“. 

  2. Bætið flórsykri útí í nokkrum skömmtum og hrærið rólega saman. Bætið meiri flórsykri saman við ef ykkur finnst það þurfa.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page