BOLLAKÖKUR MEÐ DAIM
- Jan 3
- 2 min read
Þessar bollakökur eru sannkölluð Daim veisla. Í kökunum er Daim súkkulaði og kremið er úr rjómaosti með bræddu Daim, sem gerir þær extra mjúkar og bragðmiklar.

Uppskriftin gerir 12 bollakökur 2,5 dl hveiti 1 dl púðursykur 1 dl sykur 1 tsk lyftiduft ½ tsk salt ½ tsk matarsódi 2 msk kakó 90 g smjör, brætt 2 egg ½ dl mjólk 1 msk ólífuolía 1 tsk vanilludropar1 poki daim kúlur (100 g)
Krem 100 g Philadelphia rjómaostur 100 g smjör við stofuhita 5 dl flórsykur ½ poki daim kúlur (50 g) ⅔ dl rjómi
Toppa svo með söxuðum Daim kúlum
Aðferð
Byrjið á því að hita ofninn í 180°C.
Blandið saman hveiti, púðursykri, sykri, kakó, lyfitdufti, salti og matarsóda í skál.
Bætið út í bræddu smjöri, eggjum, mjólk, ólífuolíu, vanilludropum og hrærið vel saman. Ég nota hrærivélina og hræri á hraðri stillingu þangað til deigið er orðið slétt og fínt.
Bætið daim kúlunum saman við með sleif í lokin.
Klippið bökunarpappír í stærð 12×12 eða notið tilbúin bollakökuform. Dreifið pappírnum/formunum í stórt bollakökuform/bollakökubakka. Ég nota form sem er fyrir 12 kökur. Mér finnst gott að smyrja botninn með smá smjöri þannig að smjörpappírinn haldi sér. Ég nota svo dós eða annað hringlótt ílát sem passar í formin til að móta smjörpappírinn.
Dreifið deiginu jafnt í bollakökuformin og bakið í 25-30 mínútur eða þar til bollakökurnar eru fullbakaðar. Mér finnst gott að stinga í þær með tannstöngli til að sjá hvort að þær eru orðnar bakaðar.
Á meðan kökurnar eru að bakast þá er gott að útbúa kremið.
Krem
Bræðið Daim kúlurnar og rjóma í potti. Kælið vel.
Hærirð rjómaostinum og smjörinu saman í hrærivél á hröðustu stillingu þar til að það verður „flöffý“.
Bætið flórsykri og bræddu Daim saman við rjómaostablönduna og hrærið á rólegri saman. Bætið flórsykri saman við ef ykkur finnst það þurfa.
Setjið kremið í sprautupoka og dreifið ofan á allar kökurnar eftir smekk.
Í lokin stráið söxuðu Daim kúlum ofan á kökurnar.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



















Comments