MUFFINS MEÐ ÞRENNS KONAR SÚKKULAÐI
- Oct 2, 2025
- 1 min read
Þessar muffins eru dásamlega góðar, bæði nýbakaðar og daginn eftir. Suðusúkkulaði, mjólkursúkkulaði og hvítt súkkulaði gerir þessar muffins svo góðar. Mér finnst frábært að baka svona með börnunum mínum. Einfalt, gott og fljótlegt. Passar síðan sérlega vel með sunnudagskaffinu.

Uppskrift gerir 12 muffins 6 dl hveiti 1 tsk lyftiduft 1 tsk matarsódi 1/2 tsk salt 100 g suðusúkkulaði 100 g mjólkursúkkulaði 100 g hvítt súkkulaði 110 g smjör 2 egg 2,5 dl sykur 2 tsk vanilludropar 1 dl mjólk
Aðferð
Skerið allt súkkulaðið í litla bita.
Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti og súkkulaðina saman með skeið.
Bræðið smjör og blandið saman við egg, sykur, vanilludropa og mjólk. Ég notaði hrærivélina.
Hellið hveitiblöndunni út í og hrærið varlega saman.
Dreifið deiginu í 12 muffinsform og bakið í 15-20 mín við 190°C.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti







Comments