BLÁBERJASKONSUR MEÐ HVÍTU SÚKKULAÐI
- Sep 15, 2025
- 1 min read
Ég gerði þessar ljúffengu skonsur með bláberjum og hvítu súkkulaði og mikið eru þær góðar! Þær eru afar einfaldar og ekki alltof sætar. Passa sérlega vel með kaffinu og svo er mjög gott að smyrja þær með smjöri. Dásamlegt í helgarbrönsinn!

Uppskrift gerir 8 skonsur 300 g hveiti + meira til að hnoða 2 msk sykur 1 msk lyftiduft 1 tsk salt 170 g smjör, kalt 2 egg 130 ml rjómi 100 g bláber 100 g hvítir súkkulaðidropar 1 msk sykur 1 egg
Aðferð
Hrærið saman hveiti, sykri, lyftidufti og salti.
Skerið smjörið í ca. 1 cm bita og hrærið við hveitið þangað til það verður eins og brauðmylsna. Hrærið saman rjóma og eggjum og hellið því rólega út í hveitiblönduna.
Að lokum bætið þið bláberjum og súkkulaði við en hrærið bara stutt, þið getið líka notað hendurnar til þess að hnoða því saman við.
Hnoðið deiginu rólega saman, notið auka hveiti eins og þarf. Mótið úr því hring sem er ca. 18-20 cm og 2,5 cm þykkt og leggið á bökunarplötu þakta bökunarpappír.
Penslið egginu ofan á og stráið sykrinum yfir. Skerið skonsuna í átta sneiðar áður en þið setjið hana inn í ofn.
Bakið í 30 mínútur við 190°C eða þar til að hún er orðin gyllt og hefur risið.

Njótið vel! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments