top of page

HALLOWEEN BROWNIES MEÐ BRÁÐINNI KARAMELLU

Oct 23
2 min read

Hér erum við með gómsætar brownies með bráðinni Werther´s karamellu og köngulóavef úr sykurpúðum. Djúp og dökk súkkulaðikaka og það sem toppar hana er karamellan sem bráðnar inn í hverjum bita. Það er svo hægt að leika sér með sykurpúðana og búa til kóngulóavef úr þeim.

200 g smjör

3 dl sykur

1 dl púðursykur

4 msk kakóduft

1 tsk lyftiduft

½ tsk salt

1 msk vanilludropar

4 stk egg

3 ½ dl hveiti

100 g súkkulaðibitar

Karamellulag

1 stk Werther´s Original soft caramel

2 msk rjómi

Til skrauts

11 sykurpúðar (litlar nammikóngulær, fást í allt í köku)


Aðferð

  1. Bræðið smjör á vægum hita og hrærið sykrinum saman við þar til blandan er slétt.

  2. Takið af hitanum og bætið kakódufti, lyftidufti, salti og vanilludropum saman við.

  3. Hrærið eggjunum út í, einu í einu, og blandið vel á milli.

  4. Sigtið hveitið saman við og hrærið þar til deigið er slétt.

  5. Bætið súkkulaðibitunum saman við og hrærið létt.

  6. Hellið helmingnum af deiginu í eldfast form (ca. 20x30 cm) klætt bökunarpappír.

  7. Bræðið Werther-karamellurnar í potti með rjóma á vægum hita þar til blandan verður slétt og seig.

  8. Hellið karamellunni yfir deigið og dragið aðeins með skeið svo hún dreifist. Hellið restinni af deiginu yfir og sléttið úr.

  9. Bakið við 180°C í 25–30 mínútur eða þar til kakan er bökuð að utan en mjúk í miðjunni.

  10. Látið kólna alveg áður en þið skreytið.

  11. Bræðið sykurpúðana í skál yfir vatnsbaði eða setjið á smjörpappír og bræðið í ofni við 200°C í 2–3 mínútur (fylgist vel með).

  12. Þegar þeir eru orðnir mjúkir og seigir, dragið úr þeim með fingrum eða skeið (varlega!) og togið í þræði yfir kökuna þannig að það myndist „köngulóavefur“. Skreytið síðan með litlum nammi köngulóm.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page