HREKKJAVÖKU QUESADILLAS
- Jan 3
- 1 min read
Ljúffengar quesadillas sem allir elska. Fylltar með osti, kjúklingi, svörtum baunum og salsa sósu og bornar fram með guacamole og sýrðum rjóma. Svo er þetta svo hræðilega krúttlegt og krökkunum finnst svo skemmtilegt að borða.

Uppskriftin gerir 10 litlar quesadillas 2 pakkningar street tacos frá Mission (20 litlar tortillur) 400-500 g kjúklingur, smátt skorinn eða rifinn 400 g svartar baunir 1 dós salsa sósa frá Mission Salt og pipar eftir smekk 1 havarti ostur 500 g rifinn cheddar ostur Sýrður rjómi
Guacaomle 3 avókadó 1 ferskt jalapeno, fræhreinsað ½ dl ferskt kóríander Safi úr 1 lime Salt og pipar eftir smekk 2 dl tómatar, smátt skornir 1-2 msk rauðlaukur smátt skorinn
Aðferð
Byrjið á því að blanda saman kjúklingi, svörtum baunum, salsa sósu, salti og pipar í skál.
Skerið með beittum hníf andlit í helminginn af tortillunum.
Rífið havarti ostinn og dreifið honum yfir botninn á hinum helmingnum af tortillunum.
Dreifið kjúklingablöndunni ofan á ostinn, dreifið meiri osti og að lokum dreifið rifnum cheddar jafnt yfir. Lokið tortillunum með þeim sem eru með andlit.
Bakið í 10-12 mínútur við 180°C og berið fram með sýrðum rjóma og guacamole.
Guacamole
Smátt skerið tómata og rauðlauk.
Blandið saman avókadó, smátt skornu jalapeno, kóríander, safa úr lime, salti og pipar með töfrasprota eða stappið vel saman.
Hrærið tómötunum og rauðlauknum saman við með skeið.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti













Comments