DRAUGA BITAR
- Jan 3
- 1 min read
Skemmtilegir og sætir nammibitar sem munu slá í gegn í hrekkjavökupartýinu. Svo er líka svo gaman að útbúa þetta með krökkunum.

560 g sykurpúðar 180 g smjör 240 g rice krispies 400 g hvítt súkkulaði Sykur skrímslaugu (fást í Allt í köku, Krónunni ofl.)
Aðferð
Bræðið saman sykurpúða og smjör. Hrærið vel saman og passið að þetta brenni ekki.
Þegar blandan er orðin silkimjúk þá hrærið þið rice krispies saman við í nokkrum skömmtum.
Dreifið í 34 x 22 cm eldfast form sem er þakið bökunarpappír.
Kælið og skerið í bita sem mynda drauga. Ég notaði lítið hringlaga kökuform til að mynda drauga höfuð og skar svo til með hníf.
Bræðið hvítt súkkulaði og leyfið því að kólna aðeins.
Drefið súkkulaðinu á draugabitana eftir smekk og setjið tvö augu ofan á.
Kælið þar til súkkulaðið hefur storknað og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti













Comments