top of page

HREKKJAVÖKU SÚKKULAÐIPITAR MEÐ POPPI & PRETZEL

  • Jan 4
  • 1 min read

Karamellupopp er fullkomin blanda af sætu og söltu og passar sérlega vel með súkkulaði og pretzel. Þessar fljótlegu heimagerðu súkkulaðiplötur eru tilvaldar fyrir hrekkjavöku, og það er auðvelt að bæta við hvítu súkkulaði og augum til að gera litla drauga!

300 g dökkt súkkulaði 100 g hvítt súkkulaði 2 dl karamellupopp frá Werther 1 dl pretzel Nammiaugu til að skreyta

Aðferð

  1. Byrjið á því að skera karamellupoppið og pretzel í minni bita.

  2. Bræðið dökkt súkkulað yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni þar til það er alveg fljótandi. Hellið því jafnt á bökunarpappír á bökunarplötu og sléttið út með spaða þannig að þykktin verði jöfn, u.þ.b. ½ cm.

  3. Dreifið poppinu og pretzel yfir súkkulaðið á meðan það er enn heitt, þannig að allt festist vel. Pressið létt niður ef þörf er á.

  4. Búið til drauga eða aðrar fígúrur úr hvíta súkkulaðinu og setjið nammi augun þar sem þið viljið staðsetja augun.

  5. Kælið í 30-40 mínútur eða þar til súkkulaðið er alveg storknað. Brjótið það svo í hæfilega bita með höndunum eða skerið í bita.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes


Comments


bottom of page