top of page
Search


FRENCH TOAST MUFFINS
Það er eitthvað sérstaklega notalegt við að baka French Toast muffins. Ilmurinn af kanil og vanillu er aðeins of yndisleg! Þessi uppskrift er fullkomin í helgarbrönsinn, í kaffiboðið eða bara þegar þið viljið dekra við ykkur. Með ferskum Driscoll’s jarðarberjum og hindberjum fær rétturinn bæði ferskleika og lit, og ef þið viljið gera þetta enn betur við ykkur þá passar ískalt prosecco sérlega vel með. 260 g súrdeigsbrauð (eða fransbrauð), skorið í litla bita 4 stk egg ½ dl mj


RICOTTA PÖNNUKÖKUR MEÐ BLÁBERJUM & SÍTRÓNU
Við elskum þessar pönnukökur! Ricotta osturinn gerir þær svo mjúkar og léttar og bláberin með sítrónunni gefa þeim ótrúlega ferskt bragð. Mæli með að prófa þessar ef þið viljið eitthvað aðeins öðruvísi en þessar venjulegu pönnukökur. 2,4 dl hveiti 2 msk sykur 2 tsk lyftiduft ½ tsk salt 2 dl mjólk 85 g smjör, brætt 2 egg, aðskilin (hvítur og rauður í sitthvora skálar) 1 tsk vanilludropar 170 g ricotta ostur 1 tsk fínt rifin sítrónubörkur 150 g fersk Driscoll's bláber Aðferð: 1


OFNBÖKUÐ PÖNNUKAKA (DUTCH BABY PANCAKE)
Ofnbökuð pönnukaka eða Dutch Baby Pancake með nóg af berujum er fullkomið fyrir helgarbrönsinn þegar ykkur langar í eitthvað extra gott. Stór mjúk pönnukaka sem er létt og góð þegar hún lyftist í ofninum. Berið fram með ferskum Driscoll’s berjum, smjöri, flórsykri og sírópi. Auðvelt og fljótlegt að framkvæma. Deigið blandast á nokkrum mínútum og restin sér um sig! 6 stór egg 2,4 dl hveiti 2,4 dl nýmjólk 25 g sykur (2 msk) 2 tsk vanilludropar ¼ tsk salt 60 g smjör Berið fram m


PÁSKA OSTA-& BERJABAKKI
Hvernig væri að útbúa fallegan bakka um páskana með berjum, ostum, pönnukökum og fleira gómsætu? Bera það fram með ísköldu Cava og njóta í botn í fríinu. Fullkomið í páskabrönsinn, hittingana eða jafnvel sem forréttur. Það er auðvitað svo margt sem hægt er að nota á svona bakka en hér kemur mín hugmynd sem bragðaðist dásamlega. Punkturinn yfir i-ið eru litlu jarðarberjapönnukökurnar. Mæli með að bera þær fram með hlynsírópi sem hægt er að dýfa þeim í. 1/2 pkn jarðarber frá Dr


FRENCH TOAST MEÐ FERSKUM BERJUM
Hér kemur uppskrift að french toast með ferskum berjum, hlynsírópi og rjómaostablöndu. Geggjuð blanda og kjörið til að útbúa fyrir páskabrönsinn. Ég gerði þessa gómsætu uppskrift í samstarfi við Innnes. Ég nota fersk ber frá Driscoll’s en þau eru komin í nýjar og fallegar pappaöskjur sem innihalda minna plast og eru 100% endurvinnanlegar. Og ekki skemmir hvað berin eru virkilega bragðgóð. Rjómaostablandan passar mjög vel með en hún inniheldur Philadelphia rjómaost, hlynsíróp


JARÐARBERJA BELLINI
Bellini er dásamlegur ítalskur freyðivínsdrykkur sem smellpassar í brönsinn eða bara sem ljúfur helgarkokteill. Venjulega inniheldur kokteillinn ferskjumauk en hér er hann með jarðarberjamauki. Jarðarber og freyðivín, er til eitthvað betra? Gefur mímósu ekkert eftir og mér finnst þessi drykkur eiginlega betri. Mæli með að þið prófið. Einn drykkur 1-2 dl Lamberti Prosecco 3 jarðarber 3 cl sykursíróp Aðferð Byrjið á því að blanda saman jarðaberjum og sykursírópi með töfrasprota


COINTREAU MIMOSA
Mimosa með prosecco, appelsínusafa og Cointreau. Einfalt og gott. Passar vel að bjóða uppá með brönsinum þegar þú vilt bjóða uppá aðeins öðruvísi mimosa sem bragðast alveg ótrúlega vel! 1 kokteill 75 ml appelsínusafi 75 ml Lamberti Prosecco 1 cl Cointreu Appelsínusneið til að skreyta Aðferð Hellið appelsínusafa í fallegt glas. Því næst hellið Prosecco og Cointreau. Skreytið með appelsínusneið og njótið. Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️ // HILDUR RUT INSTAGRAM: @hildurrutingi


EINFALT EGGJASALAT
Ljúffengt og létt eggjasalat sem passar vel á hrökkbrauð með avókadó. Egg, rifinn cheddar ostur, sýrður rjómi og krydd er gómsæt blanda sem klikkar ekki. Frábært sem millimál eða í hádegismat með grófu brauði. 4 soðin egg 1 dl cheddar ostur ½ – 1 dl sýrður rjómi Krydd: Cayenne pipar, salt og pipar Aðferð Takið skurnina af eggjunum og skerið þau í litla bita með eggjaskera á meðan þau eru ennþá heit. Hrærið cheddar ostinum saman við eggin og svo sýrðum rjóma. Kryddið eftir sm


RÆKJUSALAT MEÐ RISARÆKJUM
Dásamlegt rækjusalat sem er aðeins öðruvísi en þetta klassíska. Það inniheldur risarækjur, egg, Heinz majónes, steinselju, salt og pipar. Það er skemmtileg tilbreyting að nota risarækjur en þær eru skornar smátt sem gerir áferðina svo góða. Mæli með að bera þetta fram á ristuðu súrdeigsbrauði eða öðru góðu brauði með avókadó og sítrónusafa. 350 g frosnar risarækjur, óeldaðar Ólífuolía 5 soðin egg 1/2 – 1 dl Heinz majónes (eða eftir smekk) Chili flögur, salt og pipar 1 msk f


SHAKSHUKA MEÐ RICOTTA OSTI
Afar gómsætur réttur sem er tilvalinn í brönsinn. Þetta er nú alls ekki hefðbundinn Shakshuka réttur en mér finnst þessi útgáfa miklu...


OFNBAKAÐ CROISSANT MEÐ JARÐARBERJUM OG RJÓMAOSTI
Gómsætur réttur sem er tilvalinn í sunnudagsbrönsinn, saumaklúbbinn, vinahittinga eða jafnvel í babyshower. Ofnbakað croissant með jarðarberjum, rjómaosti og toppað með hlynsírópi. Ljúfur réttur sem er sniðugt að skella í daginn áður form og baka morguninn eftir. Passar vel með ísköldu Prosecco eða jafnvel mímósu. 8 croissant 4 egg 2 dl nýmjólk 1 tsk vanilludropar 2 msk hlynsíróp 1/2 tsk kanill 1/4 tsk salt 150 g Philadelphia rjómaostur 400 g Driscolls jarðarber, skorin í bit


JÓGÚRT-& EGGJABRAUÐ MEÐ BERJUM
Ljúffengt ofnbakað brauð fyllt með grísku jógúrti, eggi, kanil, hlynsírópi og ferskum berjum. Namminamm! Þetta er alveg dásamlega gott í...


RISTAÐ SÚRDEIGSBRAUÐ & SÚKKULAÐISNÚÐAR
Ljúffengur og fljótlegur bröns sem klikkar ekki. Ristað súrdeigsbrauð með ofnbökuðum tómötum, ostaeggjum og avókadó og smjördeigssnúðar fylltir með súkkulaðismyrju. Ég elska svona heimagerðan bröns á sunnudögum. Ristað súrdeigsbrauð Smjör eftir smekk Avókadó eftir smekk Sesamblanda krydd Ofnbakaðir tómatar 200-250 g kokteiltómatar 1 msk ólífuolía 2 msk ferskt oregano, smátt skorið 2 msk fersk basilika, smátt skorið Salt & pipar Egg með osti 6 egg Ólífuolía til steikingar 1 dl


LJÚFFENGT BRIOCHE BRAUÐ MEÐ ÞEYTTUM RICOTTA
Dúnmjúkt og bragðgott brioche brauð og þeyttur ricotta ostur með ofnbökuðum tómötum. Þegar ég fór til Berlínar um miðjan október þá fékk ég alveg dásamlegt brioche brauð með þeyttum osti. Ég hef ekki hætt að hugsa um þetta síðan og ég varð að prófa að útbúa svona sjálf. Ég leitað eftir góðri uppskrift og datt inn á þessa eftir einn af mínum uppáhalds matarbloggurum, Half baked Harvest. Þetta heppnaðist alveg ótrúlega vel og vá hvað ég mæli með að þið prófið. Þetta er smá tím


MÖNDLU CROISSANT
Hvað er ljúffengra en nýbakað möndlu croissant með kaffibollanum? Hér kemur uppskrift að einföldu möndlu croissant sem passar sérlega vel með sunnudagskaffinu. Croissant fyllt með dásamlegri möndlufyllingu og bakað inn í ofni. Ég elska að panta mér möndlu croissant á kaffihúsi og hef lengi ætlað að útbúa svona sjálf. Pinterest hjálpaði mér svo að setja saman þessa ljúffengu uppskrift. Þið sælkerarnir verðið að prófa þetta. 4 croissant 40 g smjör, við stofuhita ½ dl sykur 1 d


MORGUNVERÐAR BURRITO
Þessi morgunverðar burrito eru svo ótrúlega bragðgóð og djúsí. Fyllt með eggjum, steiktum kokteiltómötum, svörtum baunum, rösti...


LITLAR EGGJAMUFFINS
Svo ljúffengar litlar eggjamuffins með osti og bornar fram með tómötum, avókadó, hvítlaukssósu og Sriracah. Hentar stórvel í brönsinn. Svo einfalt, fljótlegt og gott. Einnig er gott að setja skinku, beikon eða annað í eggjablönduna. Mæli með að þið prófið! Uppskrift gerir 12 eggjamuffins 10 egg 1 dl rifinn parmesan ostur 1,5 dl rifinn cheddar ostur 1/2 pakkning Philadelphia rjómaostur Chili flögur eftir smekk Salt & pipar Meðlæti Kokteiltómatar Avókadó Hvítlaukssósa Sriracha


CHIA GRAUTUR MEÐ HINDBERJUM & MÖNDLUSMJÖRI
Ég elska einfaldan og hollan morgunmat sem mér líður vel af og gefur mér góða orku út í daginn. Ég prófaði þennan chia graut í morgun...


PÖNNUKÖKUBAKKI
Hér kemur hugmynd að girnilegum pönnukökubakka sem gefur hverjum og einum tækifæri til að setja saman sína eigin pönnuköku. Mjög...


BLÁBERJAPÖNNUKÖKUR OG EGGJASALAT
Bláberjapönnukökur eru svo góðar en ég gerði þær í samstarfi við Kötlu. Eina sem ég nota er pönnukökumix frá Kötlu, bláber, mjólk og...
bottom of page