PÖNNUKÖKUBAKKI
- Sep 15, 2025
- 1 min read
Hér kemur hugmynd að girnilegum pönnukökubakka sem gefur hverjum og einum tækifæri til að setja saman sína eigin pönnuköku. Mjög skemmtilegt og fallegt fyrir augað. Allt passar líka svo vel saman! Mæli með að þið prófið.

Pönnukökubakki 1 Prótein pönnukökur frá Kötlu 4-5 egg Salt og pipar Chili fræ 1-2 avókadó Sesamfræ eða sesamgaldur Kokteiltómatar eftir smekk Alfalfa spírur eftir smekk Salat eftir smekk Kóríander eftir smekk Sykurlaust stevíu síróp Hindber Ástríðuávöxtur Ristaðar möndluflögur Sósa 5-6 msk sýrður rjómi 4 msk cheddar ostur 1 msk jalapeno ¼ tsk laukduft ¼ tsk hvítlauksduft Salt & pipar
Aðferð
Hellið 200 ml vatni í pönnukökumixið og hristið í 1 mínútu. Látið standa í nokkrar mínútur og hristið aftur. Steikið á pönnu.
Hrærið eggjunum saman í skál. Steikið á pönnu og hrærið á meðan. Saltið og piprið.
Skerið avókadó, stráið sesamfræjum yfir og saltið og piprið. Skerið tómatana.
Blandið sósunni saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Mæli með að setja minna af jalapeno ef þið viljið ekki hafa þetta sterkt.
Raðið pönnukökunum fallega á bretti. Raðið svo öllu meðlætinu í kring og njótið.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti



Comments