top of page

BLÁBERJA- & SÍTRÓNUKAKA

  • Mar 26
  • 2 min read

Ótrúlega mjúk og bragðgóð kaka með fersku sítrónubragði, fullt af bláberjum og sítrónuglassúr. Fullkomin með kaffibolla, í helgarbaksturinn.

4,2 dl hveiti 2,4 dl sykur 2 tsk lyftiduft 1/4 tsk salt 2,4 dl hrein jógúrt 3 stór egg 2 tsk fínt rifinn sítrónubörkur 1/2 tsk vanilludropar 1,2 dl brætt smjör 2 tsk hveiti 2 dl bláber frá Driscoll's

Sítrónuglassúr

2 dl flórsykur 2 msk sítrónusafi 1–2 msk mjólk (ef þarf)

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 200°C eða 180°C á blæstri. Klæðið ílangt form (ég notaði 25x11x7,5 cm) í bökunarpappír.

  2. Veltið bláberjunum upp úr 2 tsk af hveiti. Það hjálpar þeim að dreifast betur í deiginu svo þau sökkvi síður til botns.

  3. Hrærið saman hveiti, sykri, lyftidufti og salti í stórri skál.

  4. Gerið holu í miðjuna og bætið út í jógúrti, eggjum, sítrónuberki, vanilludropum og bræddu smjöri (sem hefur fengið að kólna aðeins).

  5. Hrærið saman þar til deigið hefur rétt náð að blandast. Passið að ofhræra ekki.

  6. Blandið bláberjunum varlega saman við deigið.

  7. Hellið deiginu í formið og bakið í 50 mínútur. Leggið þá álpappír lauslega yfir formið og bakið áfram í 15–25 mínútur eða þar til prjónn eða tannstöngull kemur hreinn út úr miðjunni. Álpappírinn hjálpar til við að verja toppinn svo hann brúnist ekki of mikið á meðan kakan bakast í gegn.

  8. Leyfið kökunni að hvíla í 5 mínútur í forminu áður en þið takið hana úr og kælið alveg.

  9. Hrærið saman flórsykri og sítrónusafa fyrir glassúrinn. Bætið mjólk út í eftir þörfum þar til þið fáið fallegan, þykkan glassúr.

  10. Dreifið glassúrnum yfir alveg kalda kökuna og leyfið honum að setjast aðeins áður en þið skerið í hana. Njótið vel!



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page