top of page
Search


OFNBÖKUÐ PÖNNUKAKA (DUTCH BABY PANCAKE)
Ofnbökuð pönnukaka eða Dutch Baby Pancake með nóg af berujum er fullkomið fyrir helgarbrönsinn þegar ykkur langar í eitthvað extra gott. Stór mjúk pönnukaka sem er létt og góð þegar hún lyftist í ofninum. Berið fram með ferskum Driscoll’s berjum, smjöri, flórsykri og sírópi. Auðvelt og fljótlegt að framkvæma. Deigið blandast á nokkrum mínútum og restin sér um sig! 6 stór egg 2,4 dl hveiti 2,4 dl nýmjólk 25 g sykur (2 msk) 2 tsk vanilludropar ¼ tsk salt 60 g smjör Berið fram m


JÓGÚRTBITAR MEÐ HINDBERJUM & JARÐARBERJUM
Fullkomið millimál eða sætt nammi sem geymist í frysti! Það er eitthvað við samsetningu af grískri jógúrt, ferskum berjum og smá súkkulaði sem gerir mann alveg háðan! Þessir jógúrtbitar eru ekki bara ótrúlega girnilegir heldur líka næringarríkir. Fullkomið til að grípa í þegar sykurpúkinn bankar upp á! 2 dl grísk jógúrt 125 g Driscoll’s hindber (stappa 8 stk, rest skorin í sneiðar) 8 Driscoll’s jarðraber, smátt skorin 1-2 msk hunang (eftir smekk) 1 msk chia fræ (eða 2 msk chi


BRUSCHETTUR MEÐ BURRATA & BERJUM
Bruschettur sem bragðast alveg dásamlega. Þær eru svo ferskar, sætar og bragðgóðar með burrata osti, hindberjum, brómberjum, hunangi og pistasíum. Tilvalið að bera fram í veislum eða sem forrétt. Svo er um að gera að njóta með ísköldu cava rosé, það passar mjög vel með. 24 sneiðar af súrdeigs baguette Ólífuolía 2 burrata ostar 1 box brómber frá Driscolls 2 box hindber frá Driscolls Hunang 2-3 msk smátt skornar pistasíur Aðferð 1. Dreifið baguette sneiðum á ofnplötu þaktri bök


RÓSAVÍNS SANGRÍA BERJUM & FERSKJUM
Ljúffeng og létt sangría með rósavíni, Cointreau, jarðarberjum, hindberjum, appelsínu, hunangi og smá sódavatni. Fullkomin til að njóta í góðum félagsskap á sumrin eða bara þegar ykkur langar í eitthvað ljúffengt og fagurt í glasi. 1 flaska Adobe Rosé Reserva (750 ml) Safi úr 1 appelsínu (ca. ½ dl) 1–2 ferskjur, skornar í þunnar sneiðar 2 dl Driscoll’s jarðarber, skorin í sneiðar 1-2 dl Driscoll’s hindber 4 msk Cointreau (má minnka fyrir mildari útgáfu) 2 msk hunang (smakkið


OREO MARENGSBOMBA
Geggjuð marengsbomba með Oreo crumbs, Daim og nóg af ferskum berjum. Ég bar þessa köku fram í barnaafmæli og vá hvað hún var ljúffeng. Svona tertur eru alltaf vinsælar í veislum og ég mæli mikið með þessari. Marengs 4 eggjahvítur 200 g sykur 2 dl Oreo crumbs Rjómafylling 4 dl rjómi 2 dl Oreo crumbs 200 g jarðaber 150 g hindber Daim sósa 2 stk lítil Daim (56 g) 1 dl rjómi Toppa með: 200 g jarðaber 150 g hindber ½-1 stk lítið Daim (28 g) ½-1 dl Oreo crumbs Aðferð Þeytið eggin


PIPARKÖKU OSTAKAKA MEÐ KARAMELLUSÓSU
Þessi piparköku ostakaka er hinn fullkomni jólaeftirréttur – einföld, fljótleg og svo hátíðleg. Hún er með piparkökubotni, silkimjúkri rjómaostafyllingu, Walkers karamellusósu og bláberjum. Hvort sem þú ætlar að gleðja fjölskyldu á aðventunni eða bjóða upp á eitthvað sérstakt á jólum, þá er þessi ostakakan sem þið verðið að prófa. Botninn: 250 g piparkökur 80 g smjör, brætt Fylling: 300 g Philadelphia rjómaostur 3 msk flórsykur 3,5 dl þeyttur rjómi Toppa með: 12 stk Werther´


OSTAKAKA MEÐ JARÐARBERJUM
Þessi ostakaka er fersk og á vel við sem eftirréttur eftir góða máltíð. Ég nota jarðarber frá Driscoll’s í uppskrifina en þau eru einstaklega bragðgóð og falleg. Hvítt súkkulaði gerir svo ostakökufyllinguna einstaklega ljúffenga. Það er algjör snilld að útbúa ostakökuna daginn áður, geyma í frysti og dreifa jarðaberjunum yfir áður en þið berið hana fram. 1 pkn Lu Digestive kex 120 g smjör 2 pkn Philadelphia rjómaostur 3,5 dl rjómi 2 tsk vanilludropar 100g hvítt súkkulaði 2 ms


GRILLUÐ SMÁKAKA MEÐ KARAMELLUSÓSU
Grilluð smákaka með heitri karamellusósu og borin fram með ís og ferskum berjum. Það er frábær hugmynd að taka tilbúið deig í útileguna eða sumarbústaðinn og smella á grillið. Eina sem þarf er smákökudeig frá Kötlu, álbakki og bökunarpappír. Svo er hægt að prófa sig áfram með meðlæti, rjómi, ís, ber, ávextir o.s.frv. 1 Súkkulaði smákökudeig frá Kötlu Karamellusósa Fersk ber Ís Aðferð Hitið grillið og stillið á vægan hita. Takið smákökudeigið úr pakkningunni. Dreifið smákökude


EFTIRRÉTTIR Í GLÖSUM
Tvær gómsætar hugmyndir að eftirréttum í glösum eða krukkum. Ostakaka með möndlusmjöri, haframulningi og ferskum berjum sem er aðeins í hollari kantinum og marengs í glösum með dumle, rjóma, jarðaberjum, ástríðuávexti og fræjum úr granatepli. Mæli með að setja minna í krukkurnar/glösin ef að þið viljið minni skammta. OSTAKAKA Í KRUKKU MEÐ HAFRAMULNINGI, KÓKOS- OG MÖNDLUSMJÖRI Fyrir 4 1 dós Philadelphia rjómaostur 2 dl rjómi 4 msk kókos og möndlusmjör með döðlum frá Rapunzel S


VEGAN JÓLAÍS
Bragðgóður og jólalegur ís sem inniheldur Oatly vanillusósu, Oatly rjóma og hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingu frá Rapunzel. Vá hvað þessi blanda er góð og hátíðleg. Ég toppa svo ísinn með súkkulaðisósu úr dökku súkkulaðiáleggi frá Rapunzel ásamt ferskum berjum sem gerir hann extra hátíðlegan og fallegan. 2 fernur Oatly vanillusósa 1 ferna Oatly rjómi 2 plötur hrísgrjónasúkkulaði með heslihnetufyllingui frá Rapunzel ⅔ krukka dökkt súkkulaðiálegg frá Rapunzel Fersk ber


LJÚFFENG OSTAKAKA Í GLÖSUM
Ostakaka með TUC kexi og Milka toffee creme súkkulaði. Þessi ostakaka er brjálæðislega ljúffeng og auðveld í undirbúningi. Fullkominn eftirréttur sem gott er að gera með smá fyrirvara, geyma í ísskápnum og skella ferskum berjum ofan á þegar það á bera þetta fram. Fyrir 4-6 1 pakkning Tuc kex 100 g brætt smjör 2 ½ dl rjómi 200 g Philadelphia rjómaostur 2 msk flórsykur 100 g Milka toffee creme 2 msk rjómi Fersk ber Aðferð: Bræðið Milka toffee creme í potti ásamt 2 msk rjóma og


LITLAR TOBLERONE PAVLOVUR
Það besta við þessar pavlovu er Toblerone súkkulaði! Ég dreifi því yfir pavlovurnar áður en ég baka þær. Svo gott! Pavlovurnar eru svo toppaðar með rjóma, brómberjum, bláberjum, ástríðu ávexti og söxuðu Toblerone. Mæli með að bera þetta fram sem eftirrétt og það mun pottþétt slá í gegn! Uppskrift að 10 litlum pavlovum 4 eggjahvítur 200 g sykur 1 tsk borðedik 1¼-1½ Toblerone 3-4 dl þeyttur rjómi Brómber eftir smekk Bláber eftir smekk 1-2 ástríðu ávöxtur Aðferð Þeytið eggjahví


JARÐARBERJABOLLA FYRIR BOLLUDAGINN
Tilvalið að skála í jarðarberjabollu fyrir bolludaginn. Þessi drykkur er afar bragðgóður og ferskur með fullt af ferskum berjum. Ég bar drykkinn fram í fallegri könnu en einnig er sniðugt að setja hann í stóra skál með ausu. Frábært partý drykkur sem ég mæli mikið með. 1 dl Cointreau 1,8 dl vodka 2 dl sykursíróp 1 dl safi úr sítrónu 5 dl Pizzolato Pinot Grigio, freyðivín 2 dl sódavatn 200 g jarðarber 50 g hindber 50 g brómber Klakar Jarðarberja sykursíróp 4 dl smátt skorin ja


JÓGÚRT-& EGGJABRAUÐ MEÐ BERJUM
Ljúffengt ofnbakað brauð fyllt með grísku jógúrti, eggi, kanil, hlynsírópi og ferskum berjum. Namminamm! Þetta er alveg dásamlega gott í...
bottom of page