EFTIRRÉTTIR Í GLÖSUM
- Jan 3
- 2 min read
Tvær gómsætar hugmyndir að eftirréttum í glösum eða krukkum. Ostakaka með möndlusmjöri, haframulningi og ferskum berjum sem er aðeins í hollari kantinum og marengs í glösum með dumle, rjóma, jarðaberjum, ástríðuávexti og fræjum úr granatepli. Mæli með að setja minna í krukkurnar/glösin ef að þið viljið minni skammta.

OSTAKAKA Í KRUKKU MEÐ HAFRAMULNINGI, KÓKOS- OG MÖNDLUSMJÖRI Fyrir 4 1 dós Philadelphia rjómaostur 2 dl rjómi 4 msk kókos og möndlusmjör með döðlum frá Rapunzel Smátt skorin hindber eftir smekk Smátt skorin jarðaber eftir smekk Ristaðar möndluflögur, má sleppa
Haframulningur 1 1/2 dl grófar hafraflögur frá Rapunzel ½ dl spelt ½ dl kristallaður hrásykur frá Rapunzel 80 g smjör
Aðferð
Byrjið á því útbúa haframulninginn. Skerið smjörið í litla bita og blandið öllu saman með höndunum. Dreifið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 15-17 mínútur við 190°C eða þar til blandan verður gyllt og stökk. Það þarf að hræra í blöndunni nokkrum sinnum á meðan hún er að bakast.
Hrærið saman rjómaosti og kókos-og möndlusmjöri.
Þeytið rjóma og blandið saman við rjómaosta blönduna.
Dreifið 1-2 msk af haframulningi í botninn á krukku eða glasi. Því næst dreifið 2-3 msk af rjómaosta blöndunni og svo berjum eftir smekk. Dreifið aftur haframulningi, rjómaosta blöndunni og berjum. Skreytið með smá haframulningi og möndlu-og kókosmjöri

MARENGS Í KRUKKU MEÐ DUMLE
Fyrir 4 1 marengsbotn (ég keypti tilbúinn) 4 dl þeyttur rjómi 1 Dumle súkkulaðiplata (fæst í Hagkaup og Fjarðarkaup) 3 msk rjómi Smátt skorin jarðaber eftir smekk 1-2 ástríðuávextir Fræ úr ½ granatepli
Aðferð
Byrjið á því að bræða Dumle súkkulaðiplötuna í potti ásamt 3 msk rjóma við vægan hita og kælið. Saxið smá af súkkulaðinu áður til að skreyta með. Ef blandan er of þykk þá er gott að bæta smá rjóma saman við.
Þeytið rjómann.
Brjótið marengsinn í litla bita og dreifið í botninn á krukku eða glasi. Því næst dreifið þeyttum rjóma, berjum, granateplafræjum, ástríðuávexti og Dumle súkkulaðið. Endurtakið þetta og skreytið með saxaða Dumle súkkulaðinu.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes











Comments