top of page

DUMLEMÚS

  • Jan 3
  • 1 min read

Hér kemur ofur einfaldur og mjög ljúffengur eftirréttur sem ég hef margoft. Músin hefur aðeins fjögur innihaldsefni og tekur litla stund að útbúa. Ég helli henni síðan í falleg glös, geymi hana inn í ísskáp og toppa svo með ferskum berjum. Tilvalinn eftirréttur yfir hátíðarnar.

Fyrir 4 1 poki Dumle karamellur 4 msk rjómi 30 g smjör 2 eggjarauður 1 ½ dl rjómi

Toppa með: Þeyttum rjóma Ferskum berjum Dumle snacks eða Dumle karamellur, smátt saxað

Aðferð

  1. Bræðið Dumle karamellur, 4 msk rjóma og smjör í potti við vægan hita. Kælið í nokkrar mínútur.

  2. Blandið eggjarauðunum vel saman við með skeið.

  3. Léttþeytið rjóma og hrærið honum varlega saman við Dumle blönduna með skeið.

  4. Dreifið músinni í 4 glös og geymið í ísskáp í 1 klst eða lengur.

  5. Gott að bera fram með rjóma, ferskum berjum söxuðu Dumle snacks eða karamellur.





Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page