top of page
Search


PIPARKÖKU OSTAKAKA MEÐ KARAMELLUSÓSU
Þessi piparköku ostakaka er hinn fullkomni jólaeftirréttur – einföld, fljótleg og svo hátíðleg. Hún er með piparkökubotni, silkimjúkri rjómaostafyllingu, Walkers karamellusósu og bláberjum. Hvort sem þú ætlar að gleðja fjölskyldu á aðventunni eða bjóða upp á eitthvað sérstakt á jólum, þá er þessi ostakakan sem þið verðið að prófa. Botninn: 250 g piparkökur 80 g smjör, brætt Fylling: 300 g Philadelphia rjómaostur 3 msk flórsykur 3,5 dl þeyttur rjómi Toppa með: 12 stk Werther´


PÁSKA EFTIRRÉTUR MEÐ HINDBERJUM & MINI EGGJUM
Fljótlegur og fallegur eftirréttur með marengs, hindberjum og Cadbury mini eggjum! Fullkominn fyrir páskana, allt sett í litlar skálar og toppað með Cadbury mini eggjum og bræddu hvítu súkkulaði. Þið getið keypt tilbúinn marengsbotn til að einfalda ferlið og einblínt á að njóta. Uppskrift fyrir 6 1 marengsbotn (tips: þægilegt að kaupa bara tilbúinn) 4 dl rjómi 125 g fersk hindber frá Driscoll’s (mest notuð stöppuð, smá tekin frá til að skreyta) 1 tsk vanilludropar 3 msk flórs


DUMLEMÚS
Hér kemur ofur einfaldur og mjög ljúffengur eftirréttur sem ég hef margoft. Músin hefur aðeins fjögur innihaldsefni og tekur litla stund að útbúa. Ég helli henni síðan í falleg glös, geymi hana inn í ísskáp og toppa svo með ferskum berjum. Tilvalinn eftirréttur yfir hátíðarnar. Fyrir 4 1 poki Dumle karamellur 4 msk rjómi 30 g smjör 2 eggjarauður 1 ½ dl rjómi Toppa með: Þeyttum rjóma Ferskum berjum Dumle snacks eða Dumle karamellur, smátt saxað Aðferð Bræðið Dumle karamellur,


LJÚFFENGAR ANDABRINGUR & MEÐLÆTI
Franskar andabringur með steiktum kartöflum, kantarella sveppasósu og rósakáli með rjóma og parmesan er sannkallaður hátíðarmatur. Gott er að bera öndina fram með t.d. waldorfsalati yfir hátíðarnar og það er algjört „must“ að steikja kartöflurnar upp úr andafitunni. Rósakál með rjóma og parmesan setur punktinn yfir i-ið og allt rennur þetta svo ljúflega niður með góðu rauðvíni. Uppskrift fyrir 2-3 Andabringur 1 frosin andabringa frá Vallette Salt og pipar Ferskt timían Ferskt


RISARÆKJUKOKTEILL MEÐ AVÓKADÓ
Þessi útgáfa af klassískum rækjukokteil er aðeins öðruvísi og slær alltaf í gegn. Ljúffengur réttur sem hentar sérlega vel sem forréttur um jólin og áramótin. Þetta hefur verið fastur réttur á mínum matseðli um áramót og er alltaf jafn gott! Avókadó og risarækjur með chili og hvítlauk, þessi hráefni smellpassa saman og ekki skemmir að þetta er bráðhollt. Hvítvín passar svo sérlega vel með. Mæli mikið með! Uppskrift fyrir 4 2 avókadó 12 stórar tígrisrækjur, óeldaðar 1/2 chili1
bottom of page