top of page

RISARÆKJUKOKTEILL MEÐ AVÓKADÓ

  • Oct 13, 2025
  • 1 min read

Þessi útgáfa af klassískum rækjukokteil er aðeins öðruvísi og slær alltaf í gegn. Ljúffengur réttur sem hentar sérlega vel sem forréttur um jólin og áramótin. Þetta hefur verið fastur réttur á mínum matseðli um áramót og er alltaf jafn gott! Avókadó og risarækjur með chili og hvítlauk, þessi hráefni smellpassa saman og ekki skemmir að þetta er bráðhollt. Hvítvín passar svo sérlega vel með. Mæli mikið með!

Uppskrift fyrir 4 2 avókadó 12 stórar tígrisrækjur, óeldaðar 1/2 chili1 hvítlauksrif Salt og pipar Cumin Ólífuolía 2 dl smátt söxuð gúrka 1-2 msk steinselja + til að skreyta 1/2 sítróna

Sósa 1 msk majónes 3 msk sýrður rjómi Safi úr 1/2 sítrónu 1/2 tsk dijon sinnep 1/2-1 msk tómatsósa 5 dropar tabasco sósa Salt og pipar


Aðferð

  1. Skerið chili og steinselju smátt, pressið hvítlauk og blandið saman við risarækjurnar ásamt ólífolíu og smá sítrónusafa. Kryddið þær með cumin, salti og pipar.

  2. Blandið saman í sósuna. Mæli með að þið smakkið ykkur til.

  3. Steikið risarækjurnar upp úr olíu á vel heitri pönnu þar til að þær eru orðnar bleikar. Ef þið viljið hafa þær vel sterkar þá mæli ég með að bæta við chili.

  4. Skerið avókadó og gúrku í litla bita. Blandið því saman í skál ásamt 1-2 msk af safa úr sítrónu og kryddið með salti og pipar eftir smekk.

  5. Dreifið öllu í fjórar litlar skálar eða glös og setjið risarækjurnar ofan á.

  6. Að lokum hellið sósunni yfir og skreytið með steinselju. Gott að bera fram með sítrónubátum.


Uppskriftin er gerð í samstarfi við Innnes


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page