top of page

RISARÆKJUR MEÐ AVÓKADÓ, TÓMÖTUM & PARMESAN

  • Oct 9, 2025
  • 1 min read

Þetta er of auðvelt og of gott til að láta þetta framhjá sér fara. Bæði gott sem forréttur eða léttur kvöldmatur. Risarækjur, avókadó, tómatar og parmesan er ljúffeng blanda sem klikkar ekki. Ég elska að eiga til risarækur í frystinum til að grípa í og þá sérstaklega til að útbúa svona auðvelda og góða rétti.


Uppskrift fyrir 2

400 g risarækjur, hráar

2 hvítlauksrif, kramin

Chiliflögur, eftir smekk

Salt og pipar

Ólífuolía

2 avókadó

10 kokteiltómatar (eða 2-3 stærri tómatar)

3 msk fersk steinselja

Rifinn parmesan ostur


Aðferð:

  1. Veltið risarækjunum upp úr hvítlauknum, chiliflögum, salti, pipar og ólífuolíu. Skerið avókadó, kokteiltómata og steinselju smátt.

  2. Steikið risaækjurnar upp úr ólífuolíu í ca. 3-5 mín, þar til þær eru fulleldaðar. Dreifið parmesan osti yfir rækjurnar þegar þær eru ennþá heitar og hrærið saman.

  3. Blandið risarækjunum við avókadóið, tómatana og steinseljuna. Dreifið svo að lokum meiri parmesan osti yfir allt saman.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page