CAMEMBERT BITAR & ÁFENGISLAUS PUMPKIN SPICE EPLA SPRITZ
Updated: Nov 10
Tvær einfaldar og ótrúlega góðar uppskriftir sem passa fullkomlega saman á notalegum haust- og vetrarkvöldum, hvort sem það er saumaklúbbur, vinkonuhittingur eða þegar von er á góðum gestum.

Pumpkin spice epla spritz
Ferskur og ljúffengur óáfengur kokteill með eplasafa, heimagerðu pumpkin spice sírópi og áfengislausu freyðivíni frá Kylie Minogue. Sírópið gefur drykknum ljúfan keim af hlýjum kryddum á meðan freyðivínið og sítrónusafinn gera hann ferskan og léttan. Skemmtilegur drykkur sem hentar vel þegar von er á góðum gestum! Afganginn af sírópinu er svo tilvalið að nota út í heita kaffidrykki til að fá ljúffengt pumpkin spice bragð.

Eitt glas
2 cl heimagert pumpkin spice síróp
6 cl eplasafi lífrænn frá Krónunni
1 cl ferskur sítrónusafi
10–12 cl Kylie Minogue áfengislaust freyðivín
Klakar
Þunnar eplasneiðar
Kanilstöng til skraut
Aðferð
Setjið klaka í fallegt kokteilglas.
Hellið pumpkin spice sírópi, eplasafa og sítrónusafa yfir klakana eða hristið í kokteilahristara.
Hrærið varlega saman.
Fyllið upp með áfengislausu freyðivíni frá Kylie Minogue.
Skreytið með þunnum eplasneiðum og kanilstöng.
Pumpkin spice síróp
2 dl vatn
1½ dl púðursykur
½ dl sykur
2 tsk pumpkin spice kryddblanda frá Kryddhúsinu
1 tsk vanilludropa
Aðferð
Setjið vatn, púðursykur, sykur og pumpkin spice kryddblöndu í lítinn pott.
Hitið að suðu og hrærið þar til sykurinn hefur leyst upp.
Lækkið hitann og látið malla við vægan hita í 5–7 mínútur.
Takið pottinn af hitanum og hrærið vanilludropum út í.
Látið sírópið kólna. Sigtið það í gegnum fínt sigti ef þið viljið fjarlægja kryddagnirnar.
Hellið sírópinu í hreina flösku eða krukku og geymið í kæli.
Ábending: Magn sírópsins má aðlaga eftir smekk. Byrjið gjarnan á 1½ cl ef þið viljið hafa drykkinn minna sætan.

Smjördeigsbitar með Camembert, pekanhnetum og hunangi
Þessir litlu smjördeigsbitar eru einstaklega einfaldir og ótrúlega góðir! Stökkt smjördeig með mjúkum Camembert, pekanhnetum, fersku timían og hunangi. Fullkomið sem forréttur, í saumaklúbbinn eða þegar von er á góðum gestum.

12–15 bitar
1 rúlla smjördeig frá Pastella
1 Camembert
½ dl pekanhnetur, grófsaxaðar
2–3 msk hunang
Ferskt timían
1 egg til penslunar
Aðferð
Hitið ofninn í 200°C við undir- og yfirhita og setjið bökunarpappír á ofnplötu.
Rúllið smjördeiginu út og skerið í 12–15 jafnstóra ferninga.
Skerið camembert í litla bita og setjið einn bita á miðjuna á hverjum smjördeigsferningi.
Grófsaxið pekanhneturnar og dreifið yfir ostinn ásamt ferskum timíanlaufum og hunangi.
Brjótið tvö gagnstæð horn smjördeigsins inn yfir fyllinguna og þrýstið þeim vel saman svo bitarnir haldist lokaðir við bakstur (svo osturinn haldist í deiginu).
Raðið bitunum á ofnplötuna og penslið smjördeigið með pískuðu eggi.
Bakið í um 10–15 mínútur, eða þar til smjördeigið hefur lyft sér, er orðið gullið og fullbakað.
Takið bitana úr ofninum og dreypið hunangi yfir á meðan þeir eru enn heitir.
Berið fram volga á fallegum bakka.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Krónuna



Comments