SPICY JARÐARBERJA- & BASIL SPRITZ
- 1 day ago
- 1 min read
Þessi áfengislausi kokteill er ferskur, örlítið sætur með mildum hita frá chilihunangi og fullkominn með sumarlegu antipasto rétti eins og t.d. þessum. Crodo Lemon Soda gefur honum léttan sítruskeim og fallega freyðingu.

Hráefni (2 glös)
4–6 jarðarber
12–16 fersk basilikulauf
30 ml ferskur sítrónusafi
60 ml kalt vatn
1½ msk chilihunang frá Olifa
Klakar
Crodo Lemon Soda eftir smekk
Aðferð
Setjið jarðarber, basiliku, sítrónusafa, vatn og chilihunang í kokteilahristara.
Stappið hráefnin vel saman svo bragðið losni úr jarðarberjunum og basilikunni.
Bætið við klökum og hristið vel í 15–20 sekúndur.
Sigtið yfir í tvö glös fyllt af klökum.
Toppið með Crodo Lemon Soda og skreytið með ferskri basiliku og sítrónusneið.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Krónuna



Comments