top of page

HINDBERJAKOKTEILL

  • Feb 6
  • 1 min read

Einfaldur og bragðgóður kokteill með ljúffengri froðu og hindberjabragði. Hann inniheldur Cointreau, fersk hindber, lime, eggjahvítu, sódavatn og klaka. Hann hefur allt sem mér finnst best við kokteila. Sætt og súrt með froðu. Smá tips: Ef að þið viljið extra mikla froðu þá er geggjað að hrista kokteilinn fyrst án klaka, bæta síðan klökum saman við og hrista aftur. Algjört nammi! 


1 kokteill

4 cl Cointreau

5 hindber frá Driscoll’s

1,5 cl safi úr lime

1 eggjahvíta

Klakar

4 cl sódavatn

3 hindber og kokteilapinni sem skraut


Aðferð

  1. Setjið Cointreau, hindber, limesafa, eggjahvítu og klaka í kokteilahrista. Hristið í 15-20 sekúndur.

  2. Hellið í glas í gegninum sigti. Toppið með sódavatni.

  3. Þræðið hindber á kokteilapinna, skreytið glasið og njótið vel.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti


Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page