top of page

COSMOPOLITAN

  • Jan 18
  • 1 min read

Klassískur cosmopolitan sem rennur ljúflega niður. Drykkurinn samanstendur af Cointreau, vodka, trönuberjasafa og lime. Mér finnst gaman að drekka hann í fallegu glasi en það minnir mig aðeins of mikið á Carrie Bradshaw (ég er búin að horfa óhóflega mikið á Sex and the City í gegnum tíðina). Mæli með að skála við skvísurnar í ykkar lífi með þessum kokteil.


1 kokteill 3 cl Cointreau 4 cl Vodka 4 cl trönuberjasafi 2 cl safi úr lime 1 cl sykursíróp (má sleppa) Klakar

Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn

Aðferð

  1. Hristið allt vel saman í kokteilhristara með nóg af klökum. 

  2. Hellið í gegnum sigti í fallegt glas.


Aðferð

  1. Blandið saman vatn og sykur i í pott. 

  2. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.

  3. Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page