JARÐARBERJA MARGARITA
- Jan 1
- 1 min read
Frosin jarðarberja margarita er einstaklega ljúffengur drykkur sem auðvelt er að útbúa. Ég var nánast búin að gleyma þessum kokteil en í gegnum tíðina hef ég pantað mér hann oft og mörgum sinnum erlendis og þá sérstaklega á mexíkóskum veitingastöðum. Ég ákvað að prófa að gera hann sjálf og namm hvað hann heppnaðist vel. Það eina sem þarf að gera er að setja allt hráefnið í blender og hræra. Ég mæli með að þið prófið þennan!

4 cl Tequila Sauza Silver 2 cl cointreau 2 cl safi úr lime lime 3 cl sykursíróp (eða venjulegt síróp) 1 dl frosin jarðarber 2 dl klakar ½ dl appelsínusafi Salt eða sykur og lime bátur til að skreyta glasið
Aðferð
Byrjið á því að skreyta brúnina á glasinu. Nuddið lime báti við hana þar til hún verður blaut. Hellið sykri eða salti á disk, dýfið glasinu öfugu ofan í og þekjið brúnina.
Hellið tequila, cointreau, safa úr lime, sykursírópi, jarðaberjum, klökum og appelsínusafa í blender og hrærið vel saman.
Hellið í glas og njótið.
Sykursíróp
Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti









Comments