top of page

WHISKEY SOUR MEÐ CHILI

  • Jan 1
  • 1 min read

Whiskey sour með smá twisti. Bourbon viskí, sítróna, eggjahvíta, sykursíróp með chili og fullt af klökum gerir drykkinn svo einstaklega bragðgóðan, súran, sætan og freyðandi. Chili setur svo punktinn yfir i-ið fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt og spennandi. Svo er líka gott að nota sírópið í aðra drykki t.d. mojito. Ef þið viljið gera klassískan Whiskey sour þá er hægt að sleppa chili. Skál til ykkar og njótið í botn!

1 kokteill 6 cl Jeam Beam Bourbon Whiskey 3 cl safi úr sítrónu 3 cl sykursíróp með chili 1 eggjahvíta Klakar Chili til skreytingar

Aðferð

  1. Hellið whiskey, safa úr sítrónu, sykursírópi, eggjahvítu og klaka í kokteilahristara og hristið vel þar til kokteilinn freyðir. 

  2. Hellið í glas og skreytið með sneið af chili. Mér finnst gott að setja klakana með.

Sykursíróp með chili 200 g sykur 200 ml vatn 1-2 chili

  1. Skerið chili í sneiðar.

  2. Blandið saman vatn, sykur og chili í pott. 

  3. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.

  4. Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Recent Posts

See All

Comments


bottom of page