top of page
Search


JÓLA COSMO 75
Ljúffengur jólakokteill með heimagerðu trönuberjasírópi Fyrir mér snýst fullkominn jólakokteill um að sameina fallega liti, góð hráefni og auðvelda aðferð. Heimagerða trönuberjasírópið lyftir þessum drykk á annað level og er líka hægt að nota í aðra drykki eða jafnvel á eftirrétti. Þetta er kokteill sem er ferskur, jólalegur og með smá freyðandi lúxus. Fyrir einn kokteil: 2 cl gin 2 cl Cointreau 2 cl trönuberjasíróp 2 cl ferskur lime-safi Klakar eða stór klaki með rósmarín og


COSMOPOLITAN
Klassískur cosmopolitan sem rennur ljúflega niður. Drykkurinn samanstendur af Cointreau, vodka, trönuberjasafa og lime. Mér finnst gaman að drekka hann í fallegu glasi en það minnir mig aðeins of mikið á Carrie Bradshaw (ég er búin að horfa óhóflega mikið á Sex and the City í gegnum tíðina). Mæli með að skála við skvísurnar í ykkar lífi með þessum kokteil. 1 kokteill 3 cl Cointreau 4 cl Vodka 4 cl trönuberjasafi 2 cl safi úr lime 1 cl sykursíróp (má sleppa) Klakar Sykursíróp


WHISKEY SOUR MEÐ CHILI
Whiskey sour með smá twisti. Bourbon viskí, sítróna, eggjahvíta, sykursíróp með chili og fullt af klökum gerir drykkinn svo einstaklega bragðgóðan, súran, sætan og freyðandi. Chili setur svo punktinn yfir i-ið fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt og spennandi. Svo er líka gott að nota sírópið í aðra drykki t.d. mojito. Ef þið viljið gera klassískan Whiskey sour þá er hægt að sleppa chili. Skál til ykkar og njótið í botn! 1 kokteill 6 cl Jeam Beam Bourbon Whiskey 3 cl safi ú


JÓLA COSMO
Vá vá vá, hvað þessi kokteill er bragðgóður og jólalegur með góðri froðu. Cointreu, möndlulíkjör, trönuberjasafi, sykursóp, lime og eggjahvíta. Geggjað að skála í þessum yfir hátíðirnar. 2 kokteilar 10 cl trönuberjasafi 5 cl Cointreau 5 cl Amaretto Bols Amsterdam 4 cl sykursíróp 4 cl safi úr lime 1 egg (eggjahvíta) 2 kirsuber úr krukku Aðferð Hellið trönuberjasafa, Countreau, Amaretto, sykursírópi, limesafa og eggjahvítu í hristara og hristið í 10-15 sekúndur. Bætið klökum sa


BLEIKUR PARTÝ DRYKKUR
Við héldum við skemmtilegt partý í vinnunni og buðum uppá ljúffengan freyðivíns- og gin jarðarberjadrykk með candy floss ásamt dásamlegum köku-og jarðarberja bakka. Drykkurinn var svo góður og einfaldur! Ég útbjó jarðarberja-og ginblönduna daginn áður, setti í flösku og geymdi inn í ísskáp. Svo helti ég blöndunni í glös, bætti freyðivíni útí og skreytti með candy floss. Ef að þið eruð með veislu eða partý á næstunni þá er þessi kokteill tilvalinn! 1 drykkur 3 cl Roku gin 2 cl


GIN FIZZ
Mínir uppáhalds kokteilar eru freyðandi, súrir og sætir eins og þessi hér. Eggjahvítan og sódavatnið gerir extra froðu! Passið bara að hrista drykkinn vel. Ég mæli líka með að þið útbúið sykursíróp, það er ekkert mál og gerir kokteilinn svo góðan. Njótið vel! 1 kokteill 50 ml gin 25 ml safi úr sítrónu 25 ml sykursíróp (eða hlynsíróp) 1 eggjahvíta Klakar 50 ml sódavatn Aðferð Hellið gini, safa úr sítrónu, sykursírópi og eggjahvítu í kokteilahristara og hristið vel í 15 sekúndu


FROSIN MANGO- & JALAPENO MARGARITA
Einstaklega ljúffengur drykkur sem er bæði sætur og rífur aðeins í. Frosið mangó, jalapeno, tequila, Cointreau, lime, síróp og nóg af klökum. Ég mæli með að bæta aðeins við jalapeno ef að þið viljið láta hann rífa í eða minnka magnið ef að þið viljið hafa hann mildari. Mér finnst best að hafa hann sterkan, það er svo gott með sæta mangó bragðinu. Einn drykkur 4 cl Tequila Sauza Silver 2 cl Cointreau 2 cl safi úr lime 3 cl sykursíróp (eða venjulegt síróp) ½ ferskur jalapeno 1


JARÐARBERJA BELLINI
Bellini er dásamlegur ítalskur freyðivínsdrykkur sem smellpassar í brönsinn eða bara sem ljúfur helgarkokteill. Venjulega inniheldur kokteillinn ferskjumauk en hér er hann með jarðarberjamauki. Jarðarber og freyðivín, er til eitthvað betra? Gefur mímósu ekkert eftir og mér finnst þessi drykkur eiginlega betri. Mæli með að þið prófið. Einn drykkur 1-2 dl Lamberti Prosecco 3 jarðarber 3 cl sykursíróp Aðferð Byrjið á því að blanda saman jarðaberjum og sykursírópi með töfrasprota


PORNSTAR MARTINI
Mjög bragðgóður kokteill sem er bæði sætur og súr með vanillu- og ástaraldini. Hann inniheldur vodka, passoa, ástaraldin, vanillu sykursíróp, sítrónusafa og egg. Vinkona mín var búin að mæla með þessum drykk svo ég varð bara að prófa að útbúa hann og hann tikkar í öll boxin. Mæli með að þið brettið upp ermarnar og prófið þennan um helgina ♥ Fyrir 1 15 ml Passoa 40 ml vodka 25 cl safi úr sítrónu 25 cl Vanillu sykursíróp ½ ástaraldinn 1 egg eða 25 ml kjúklingabaunasafi (Mjög


STOKKRÓSAR MARGARITA
Ótrúlega ljúffengur kokteill sem er sætur, saltur og súr. Dásamleg blanda! Margarita er klassískur og vel þekktur kokteill frá Mexíkó sem samanstendur af tequila, Cointreau, safa úr lime og klökum. Stokkrósar sírópið gerir drykkinn einstaklega bragðgóðan og ljúfan. Svo finnst mér algjört „must“ að setja salt á glasbrúnina. Það setur punktinn yfir-ið. En auðvitað má alveg sleppa því. Þessi drykkur er fullkominn með tacoveislunni eða til að njóta um helgina. Skál! Fyrir einn 6


JARÐARBERJABOLLA FYRIR BOLLUDAGINN
Tilvalið að skála í jarðarberjabollu fyrir bolludaginn. Þessi drykkur er afar bragðgóður og ferskur með fullt af ferskum berjum. Ég bar drykkinn fram í fallegri könnu en einnig er sniðugt að setja hann í stóra skál með ausu. Frábært partý drykkur sem ég mæli mikið með. 1 dl Cointreau 1,8 dl vodka 2 dl sykursíróp 1 dl safi úr sítrónu 5 dl Pizzolato Pinot Grigio, freyðivín 2 dl sódavatn 200 g jarðarber 50 g hindber 50 g brómber Klakar Jarðarberja sykursíróp 4 dl smátt skorin ja


SÚKKULAÐI ESPRESSO MARTINI
Gómsætur espresso martini með súkkulaði líkjöri sem gerir drykkinn svo ótrúlega bragðgóðan! Einn kokteill 30 cl Tobaco gold súkkulaði líkjör 30 cl vodka 30 cl espresso kaffi 15 cl sykursíróp Klakar Aðferð : Hristið saman Tobaco gold, vodka, espresso kaffi, sykursírópi og klaka í kokteilahristara í 15 – 20 sekúndur. Hellið í fallegt glas í gegnum sigti og njótið! Sykursíróp Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til h


BASIL GIMLET
Basil gimlet er svo ferskur og góður kokteill. En svo skemmir ekki hvað það er einfalt að útbúa hann. Hann hefur lengi verið vinsæll á Íslandi og núna loksins ætla ég að deila með ykkur uppskrift. Þetta er klassískur gimlet kokteill sem inniheldur gin, lime safa, sykursíróp og svo punkturinn yfir i-ið er fersk basilika. Ef að þið hafið ekki prófað hann þá mæli ég mikið með að þið gerið það. 1 drykkur 6 basiliku laufblöð 6 cl Roku gin 3 cl sykursíróp 3 cl safi úr lime Klakar A


ÁSTARALDIN & VANILLU GIN
Ljúffengur kokteill með ástaraldini, sítrónu, sykursírópi með vanillu, gini og eggjahvítu. Þessi kokteill er algjört nammi en samt svo frískandi. Ég er alltaf svo hrifin af kokteilum sem innihalda eggjahvítu og sítrónu. Áferðin á drykknum verður svo góð og toppurinn yfir i-ið er froðan. 1 kokteill 5 cl Roku gin 3 cl safi úr sítrónu 3 cl sykursíróp með vanillu 1 ástaraldin 1 eggjahvíta Klakar Sykursíróp með vanillu 100 g sykur 1 dl vatn 2 tsk vanillu extract Aðferð Hellið gini


HINDBERJA MOJITO
Þegar ég hugsa um sumarlegan kokteil þá kemur mojito strax upp í hugann þótt að hann passar allan ársins hring! Hér kemur uppskrift að hindberja mojito sem afar bragðgóður. Hindberin gera drykkinn svo ferskan og bragðgóðan. Mæli með að þið prófið! Fyrir einn 6-8 hindber 10-12 fersk myntu laufblöð 6 cl Brugal romm 2 cl safi úr lime 3 cl sykursíróp Klakar 1-2 dl sódavatn Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn Aðferð Setjið hindber og myntu laufblöð í hátt glas og merjið. Hellið ro


FRENCH 75
Kokteill sem er afar ljúffengur og frískandi. Hann inniheldur dásamlega blöndu af freyðivíni, gini, sykursírópi og sítrónusafa. Það er ekkert svo langt síðan að ég uppgötvaði þennan drykk en ein yndisleg frænka sagði mér frá honum og hann er strax orðinn einn af uppáhalds. Hvernig væri að skála í þessum um helgina? 1 kokteill 3 cl Roku gin 2 cl sykursíróp 2 cl sítrónusafi Klakar 1,5 dl Lamberti Prosecco Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn Aðferð Hristið saman gin, sykursíróp,


WHISKEY SOUR
Klassískur whiskey sour klikkar ekki en hér kemur uppskriftin sem mér finnst best. Hann er í uppáhaldi hjá mér! Akkúrat rétt jafnvægi á milli sítrónu, sætu og viskís en svo er froðan algjört must! 1 kokteill 6 cl Jeam Beam Black viskí Nokkrir dropar angostura bitter (má sleppa) 3 cl safi úr sítrónu 3 cl sykursíróp 1 eggjahvíta Klakar Appelsínusneið Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn Aðferð Hellið viskí, safa úr sítrónu, sykursírópi og eggjahvítu í kokteilahristara og hristið


TRÖNUBERJA GIN
Bragðgóður kokteill sem kemur manni í jólaskapið. Kokteillinn inniheldur gin, trönuberjasafa, sykursíróp, angostura bitter, rósmarín og appelsínu. Þessi blanda er alveg sérlega góð og trönuberin, appelsínukeimurinn og rósmarínið gerir drykkinn svo jólalegan og gómsætan. Fyrir einn 60 ml Roku gin 1,3 dl trönuberjasafi 2 ml sykursíróp Nokkrir dropar angostura bitter Rosmarín stilkur Appelsínu sneið Klakar Skreyta með trönuberjum eða rifsberjum Aðferð Hellið gini, trönuberjasaf


GRÆNN HALLOWEEN DRYKKUR
Epla mickey finn, vodki, kryddað sykursíróp, sódavatn og klakar gerir þennan skemmtilega Halloween kokteil. Þessi blanda er bragðgóð, ríkjandi epla, kanil og engifer bragðið gefur drykknum hátíðlegan blæ. Sykursírópið setur svo punktinn yfir i-ið en ekki láta það stoppa ykkur því það er svo ofur einfalt að útbúa og gerir drykkinn einstaklega góðan! Þið getið síðan notað sírópið í aðra drykki því það geymist í u.þ.b. mánuð í ísskáp. Einn drykkur 4 cl epla Mickey finn 2 cl Russ
bottom of page