top of page

BLEIKUR PARTÝ DRYKKUR

  • Jan 1
  • 1 min read

Við héldum við skemmtilegt partý í vinnunni og buðum uppá ljúffengan freyðivíns- og gin jarðarberjadrykk með candy floss ásamt dásamlegum köku-og jarðarberja bakka. Drykkurinn var svo góður og einfaldur! Ég útbjó jarðarberja-og ginblönduna daginn áður, setti í flösku og geymdi inn í ísskáp. Svo helti ég blöndunni í glös, bætti freyðivíni útí og skreytti með candy floss. Ef að þið eruð með veislu eða partý á næstunni þá er þessi kokteill tilvalinn!

1 drykkur 3 cl Roku gin 2 cl jarðarberjasíróp 2 cl sítrónusafi Klakar 1,5 dl Lamberti Prosecco Candy floss Jarðarberjasíróp 400 g frosin eða fersk jarðarber 5 dl sykur 5 dl vatn

Aðferð

  1. Hristið saman gin, jarðarberjasíróp, sítrónusafa og nokkra klaka í kokteilhristara.

  2. Hellið í gegnum sigti í fallegt glas og fyllið upp í það með Prosecco.

  3. Skreytið með candy floss og njótið.

  4. Ef að þið ætlið að útbúa fyrir marga þá er frábært að hrista saman í marga drykki í flösku. Geyma í kæli og hella svo blöndunni í glös, bæta freyðivíni útí og skreyta með candy floss.


Jarðarberjasíróp

  1. Blandið saman vatn, sykur og jarðarber i í pott.

  2. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Stappið og blandið jarðarberjunum vel saman við. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.

  3. Ég helli sírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page