FRENCH 75
- Jan 1
- 1 min read
Kokteill sem er afar ljúffengur og frískandi. Hann inniheldur dásamlega blöndu af freyðivíni, gini, sykursírópi og sítrónusafa. Það er ekkert svo langt síðan að ég uppgötvaði þennan drykk en ein yndisleg frænka sagði mér frá honum og hann er strax orðinn einn af uppáhalds. Hvernig væri að skála í þessum um helgina?

1 kokteill
3 cl Roku gin
2 cl sykursíróp
2 cl sítrónusafi
Klakar
1,5 dl Lamberti Prosecco
Sykursíróp 200 g sykur 200 ml vatn
Aðferð
Hristið saman gin, sykursíróp, sítrónusafa og nokkra klaka í kokteilhristara.
Hellið í gegnum sigti í fallegt glas og fyllið upp í það með Prosecco.
Skreytið með sítrónu og njótið.
Aðferð
Blandið saman vatn og sykur i í pott.
Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti







Comments