GIN FIZZ
- Jan 1
- 1 min read
Mínir uppáhalds kokteilar eru freyðandi, súrir og sætir eins og þessi hér. Eggjahvítan og sódavatnið gerir extra froðu! Passið bara að hrista drykkinn vel. Ég mæli líka með að þið útbúið sykursíróp, það er ekkert mál og gerir kokteilinn svo góðan. Njótið vel!

1 kokteill 50 ml gin 25 ml safi úr sítrónu 25 ml sykursíróp (eða hlynsíróp) 1 eggjahvíta Klakar 50 ml sódavatn
Aðferð
Hellið gini, safa úr sítrónu, sykursírópi og eggjahvítu í kokteilahristara og hristið vel í 15 sekúndur.
Bætið nokkrum klökum saman við (mér finnst best að hafa þá stóra) og hristið í 30 sekúndur.
Hellið í glas og bætið sódavatninu rólega saman við. Skreytið með sítrónu.
Sykursíróp
Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott.
Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
Ég helli sykursírópinu ofan í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um 1 mánuð.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti







Comments