top of page

MANDARÍNU GIN & TÓNIK

  • Jan 1
  • 1 min read

Þessi kokteill er ferskur, einfaldur og afar góður og ég mæli hiklaust með! Gin og tónik með mandarínu og rósmarín. Mér hefur alltaf fundist gin og tónik mjög góður drykkur en þessi útgáfa setur hann á annað level því mandarínan gefur honum bæði sætt og ferskt bragð. Skál til ykkar!

Einn kokteill ½ dl safi úr mandarínu (2-3 mandarínur) 5 cl Rpoku gin 1,5-2 dl tónik 2 dl klakar Ferkst rósmarín

Aðferð

  1. Byrjið á því að kreista safann úr mandarínunum.

  2. Setjið klaka í glas og hellið gini, safa úr mandarínum, tónik og hrærið varlega saman.

  3. Skreytið með rósmarín og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️

// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Comments


bottom of page