top of page

HALLOWEEN FRENCH 75

6 days ago
1 min read

Fullkominn kokteill fyrir Halloween partýið! Þessi er bæði ótrúlega góður og skemmtilegur í framreiðslu! Brómberja- og ginblanda í sprautum sem hver og einn sprautar út í sitt glas af Prosecco.

Brómberjasíróp

2 dl sykur

2 dl vatn

1 lítið box af ferskum brómberjum frá Driscoll’s (125 g)


Ginblanda (fyrir 1 skammt en dugar í ca. 4 sprautur)

3 cl gin

3 cl brómberjasíróp

2 cl sítrónusafi

4 sprautur (keypti í Tiger)

Kylie Minogue Prosecco


1. Setjið sykur, vatn og brómber í pott.

2. Látið malla á vægum hita í um 10 mínútur.

3. Sigtið frá og kælið sírópið alveg áður en þið notið það.

4. Hristið gin, síróp og sítrónusafa saman í hristara.

5. Hellið blöndunni í sprautur og geymið í kæli.

6. Hellið Prosecco í glös og setjið sprauturnar ofan í. Hver og einn sprautar út í sitt glas.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️


// HILDUR RUT


INSTAGRAM: @hildurrutingimars 

TIKTOK: @hildurruti

Samstarf við Innnes

Comments


bottom of page