SPICY DEVIL'S SOUR
Þessi kokteill er klár í Halloween-partýið! Ferskt lime, granatepli og Cointreau Spicy með smá chili hita, mjúkri froðu og djöflahornum úr chilipipar.

Í eitt glas
2 cl gin
3 l Cointreau Spicy
4 cl granateplasafi
2 cl safir úr lime
1 cl sykursíróp
2 cl gerilsneydd eggjahvíta eða aquafaba
Klakar
2 rauðir chilipiprar til skrauts
Á glasbrúnina
1 tsk. Tajín
2 tsk. fínn sykur
Lime bátur
Aðferð
Blandið Tajín og sykri saman á litlum diski. Vætið hálfa glasbrúnina með lime og dýfið létt í blönduna.
Setjið gin, Cointreau Spicy, granateplasafa, limesafa, sykursíróp og eggjahvítu í kokteilhristara. Hristið kröftuglega án klaka í um 15 sekúndur.
Bætið klökum út í og hristið aftur í um 15 sekúndur, þar til drykkurinn er vel kaldur.
Síið gegnum fínt sigti í glasið og leyfið froðunni að setjast. Ef þið viljið meiri froðu getið þið fleytt froðunni sem eftir er í hristaranum ofan á drykkinn með skeið.
Skerið litla rauf nálægt breiðari enda chilipipranna. Festið þá á sitt hvora hlið glasbrúnarinnar með oddana upp eins og djöflahorn.
Sykursíróp: Leysið 1 dl af sykri upp í 1 dl af heitu vatni og kælið fyrir notkun. Smakkið drykkinn til í fyrstu tilraun, því granateplasafi getur verið misjafnlega sætur.



Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes



Comments