GRÆNN HALLOWEEN DRYKKUR
- Jan 1
- 1 min read
Epla mickey finn, vodki, kryddað sykursíróp, sódavatn og klakar gerir þennan skemmtilega Halloween kokteil. Þessi blanda er bragðgóð, ríkjandi epla, kanil og engifer bragðið gefur drykknum hátíðlegan blæ. Sykursírópið setur svo punktinn yfir i-ið en ekki láta það stoppa ykkur því það er svo ofur einfalt að útbúa og gerir drykkinn einstaklega góðan! Þið getið síðan notað sírópið í aðra drykki því það geymist í u.þ.b. mánuð í ísskáp.

Einn drykkur
4 cl epla Mickey finn
2 cl Russian standard vodka
3 cl sykursíróp
1 ½ dl sódavatn
Klakar
Epli & kanilstöng til að skreyta
Kryddað sykursíróp
200 g sykur
200 ml vatn
2 stk kanilstangir
3 stk stjörnu anís
1 msk negulnaglar
1 tsk malað engifer
Aðferð
Hellið Mickey finn, vodka og sykursírópi og hrærið saman. Blandið svo sódavatni saman við og toppið með klökum.
Skreytið með kanilstöng og grænni eplaskífu og njótið.
Kryddað sykursíróp
Blandið saman vatni, sykri, kanilstöngum, anís, negulnöglum og engifer.
Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Tekur nokkrar mínútur.
Hellið sykursírópinu (ég læt kryddið fara með) ofan í flösku eða annað ílát og geymið í ísskáp. Geymist í u.þ.b. einn mánuð.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti











Comments