PUMPKIN SPICE STROH KAFFI
- Jan 1
- 1 min read
Kokteill sem yljar manni á köldum dögum, afar ljúffengur og minnir aðeins á jólin. Heitur kaffidrykkur með Stroh, flóaðri mjólk, pumpkin spice, hrásykri og toppaður með þeyttum rjóma.

Fyrir einn 1 espresso skot kaffi eða ½ dl sterkt kaffi 1 msk hrásykur ¼ tsk pumpkin spice + auka til að skreyta 2-4 cl Stroh 1 dl flóuð mjólk Þeyttur rjómi
Pumpkin spice kryddblanda 2 tsk kanill ½ tsk múskat ½ tsk malaður negull ½ tsk malað engifer
Aðferð:
Byrjið á því að útbúa pumpkin spice kryddblönduna. Blandið öllum hráefnunum saman í skál eða krukku. Gott að geyma svo í krukku upp í skáp til að eiga. Mér finnst t.d. gott að strá smá pumpkin spice út í kaffið.
Blandið saman heitu kaffi, hrásykri og pumpkin spice í bolla eða glas. Hrærið vel saman þar til sykurinn leysist upp.
Hellið Stroh saman við og hrærið.
Hitið mjólkina í potti eða í mjólkurflóara, hellið saman við kaffiblönduna og hrærið.
Að lokum toppið kokteilinn með þeyttum rjóma, stráið pumpkin spice yfir og njótið!


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti











Comments