top of page
Search


ÍSKAFFI MEÐ KÓKOSMJÓLK
Sumarlegt og ljúffengt ískaffi. Hann inniheldur kaffi, sykurlaust karamellusíróp, kókosmjólk og nóg af klökum. Það er algjör snilld að nota kókosmjólkina í drykkinn, hún gefur honum svo ljúft og gott bragð. Ég nota svo flóarann frá Sjöstrand til að kaldflóa mjólkina sem ég mæli með að þið prófið. Það er mjög gott og það kemur skemmtileg áferð á mjólkina en annars má alveg sleppa því að flóa mjólkina. Mæli með að þið prófið þennan drykk. Uppskrift gerir einn drykk 1-2 espresso


AFFOGATO
Affogato eftirréttakokteill er ómótstæðilega góður og ef þú ert kaffiunnandi þá áttu líklegast eftir að elska hann. Affogato er vinsæll ítalskur eftirréttur sem inniheldur espresso skot og ís. Hér kemur hann í fullorðinsbúningi og inniheldur kaffilíkjör og vodka og er toppaður með rifnu súkkulaði. Fyrir einn 30 ml espresso frá Sjöstrand (1 espresso skot) 5 cl kaffilíkjör 2 cl vodka 1 kúla vanilluís Rifið dökkt súkkulaði Aðferð Byrjið á því að útbúa eitt espresso skot í glas.


SÚKKULAÐI ESPRESSO MARTINI
Gómsætur espresso martini með súkkulaði líkjöri sem gerir drykkinn svo ótrúlega bragðgóðan! Einn kokteill 30 cl Tobaco gold súkkulaði líkjör 30 cl vodka 30 cl espresso kaffi 15 cl sykursíróp Klakar Aðferð : Hristið saman Tobaco gold, vodka, espresso kaffi, sykursírópi og klaka í kokteilahristara í 15 – 20 sekúndur. Hellið í fallegt glas í gegnum sigti og njótið! Sykursíróp Blandið saman 200 ml af vatni og 200 g af sykri í pott. Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til h


SVALANDI ESPRESSO TÓNIK
Hafið þið prófað kaffi með tónik og lime? Þetta er svo ljúffeng og einföld blanda sem kemur mikið á óvart. Ég útbjó eina slíka uppskrift í samstarfi við Sjöstrand sem ég mæli með að þið prófið. Sumarlegur og afar frískandi drykkur. Einn drykkur 1-2 espresso skot Sjöstrand nr.1 ½ dl tónik vatn 4-6 klakar 1 limebátur Aðferð Setjið klaka í glas og hellið tóniki ofan í. Útbúið 1-2 skot af espresso og hellið út í tónik vatnið. Kreystið safa úr limebáti. Skreytið með lime sneið og


ESPRESSO MARGARITA
Óvá hvað þessi drykkur er ljúffengur! Tequila, Cointreau, kaffisíróp og lime er dásamleg og frískandi blanda sem kemur á óvart. Mæli með að skála í þessum um helgina. Fyrir einn 3 cl Tequila blanco 3 cl Cointreau 3 cl kaffisíróp 2 cl safi úr lime Kaffisíróp 2 dl kaffi 2 dl sykur Aðferð Hristið saman tequila, Cointreau, kaffi sírópi, safa úr lime og klaka í kokteilahristara í 15 – 20 sekúndur. Hellið í fallegt glas í gegnum sigti og njótið. Kaffisíróp Blandið saman kaffi og s


HÁTÍÐAR IRISH COFFEE
Það er eitthvað svo notalegt að fá sér heitan og ljúffengan drykk í skammdeginu þegar farið er að kólna úti. Irish coffee er þá sannarlega viðeigandi en hann er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hér kemur uppskrift að slíkum drykk í hátíðarbúningi en ég nota Fireball whiskey líkjör með heitu kanilbragði sem gerir drykkinn svo einstaklega ljúfan. Fyrir einn 6 cl Fireball líkjör 250 ml kaffi 2 tsk púðursykur Rjómi Súkkulaðispænir Kanill Aðferð Blandið saman púðursykri og kaffi í glas


PUMPKIN SPICE STROH KAFFI
Kokteill sem yljar manni á köldum dögum, afar ljúffengur og minnir aðeins á jólin. Heitur kaffidrykkur með Stroh, flóaðri mjólk, pumpkin spice, hrásykri og toppaður með þeyttum rjóma. Fyrir einn 1 espresso skot kaffi eða ½ dl sterkt kaffi 1 msk hrásykur ¼ tsk pumpkin spice + auka til að skreyta 2-4 cl Stroh 1 dl flóuð mjólk Þeyttur rjómi Pumpkin spice kryddblanda 2 tsk kanill ½ tsk múskat ½ tsk malaður negull ½ tsk malað engifer Aðferð: Byrjið á því að útbúa pumpkin spice kry


LJÚFFENGUR KAFFI BOOST
Þessi drykkur er í miklu uppáhaldi þessa dagana. Ég elska að byrja daginn á þessum gómsæta kaffi boost drykk sem ég útbjó í samstarfi við Sjöstrand á Íslandi. Hann er svo orkuríkur og góður og hentar líka vel fyrir þá sem eru vegan. Ég nota tvöfalt espresso skot frá Sjöstrand, banana, döðlur, hnetusmjör, haframjöl, hampfræ, kakó og möndlumjólk. Þetta er í morgunmatinn hjá mér nokkra daga vikunnar og ég elska það. Þið verðið bara að prófa! Uppskrift gerir einn drykk 1-2 espres
bottom of page