SVALANDI ESPRESSO TÓNIK
- Jan 1
- 1 min read
Hafið þið prófað kaffi með tónik og lime? Þetta er svo ljúffeng og einföld blanda sem kemur mikið á óvart. Ég útbjó eina slíka uppskrift í samstarfi við Sjöstrand sem ég mæli með að þið prófið. Sumarlegur og afar frískandi drykkur.

Einn drykkur 1-2 espresso skot Sjöstrand nr.1 ½ dl tónik vatn 4-6 klakar 1 limebátur
Aðferð
Setjið klaka í glas og hellið tóniki ofan í.
Útbúið 1-2 skot af espresso og hellið út í tónik vatnið.
Kreystið safa úr limebáti. Skreytið með lime sneið og njótið.

Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti







Comments