LJÚFFENGUR KAFFI BOOST
- Sep 17, 2025
- 1 min read
Þessi drykkur er í miklu uppáhaldi þessa dagana. Ég elska að byrja daginn á þessum gómsæta kaffi boost drykk sem ég útbjó í samstarfi við Sjöstrand á Íslandi. Hann er svo orkuríkur og góður og hentar líka vel fyrir þá sem eru vegan. Ég nota tvöfalt espresso skot frá Sjöstrand, banana, döðlur, hnetusmjör, haframjöl, hampfræ, kakó og möndlumjólk. Þetta er í morgunmatinn hjá mér nokkra daga vikunnar og ég elska það. Þið verðið bara að prófa!

Uppskrift gerir einn drykk
1-2 espresso skot Sjöstrand nr.1
2 dl möndlumjólk
1 frosinn banani
3 döðlur
1 msk hnetusmjör
1 msk haframjöl
1 tsk hampfræ
1 tsk kakóduft
4-6 klakar
Aðferð
Útbúið 1-2 kaffiskot í glas. Bætið 1-2 klökum saman við kaffið og kælið.
Setjið öll hráefnin saman í blandara og hrærið vel saman.
Hellið í glas og njótið.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti






Comments