top of page

BOOST MEÐ JARÐARBERJUM & BÖNUNUM

  • Sep 15, 2025
  • 1 min read

Hvað er betra en að byrja daginn á góðum og orkuríkum þeytingi (boost)? Þessi er með jarðarberjum og bönunum en það er blanda sem klikkar seint. Hann er í miklu uppáhaldi hjá mér og börnin mín elska þetta! Hnetusmjörið og döðlurnar gera drykkinn svo sérlega góðan. Ef þið viljið hafa drykkinn extra frosinn þá er gott að frysta banana (ég geri það nánast alltaf) og nota í þeytinginn. Mér finnst líka gott að setja frosin hindber eða mangó í staðinn fyrir jarðarberin.


Fyrir einn

2 dl frosin jarðarber

1/2-1 banani

3 dl möndlumjólk

1 msk chia fræ

1 msk hnetusmjör

3 döðlur

Aðferð:

  1. Byrjið á því að leggja chia fræin í bleiti. Ég set 1/2 dl af möndlumjólk og læt standa í minnsta lagi í 15 mínútur.

  2. Setjið allt hráefnið í blandara, blandið vel saman og hellið í glas.


Njótið vel! ❤️

// HILDUR RUT

INSTAGRAM: @hildurrutingimars

TIKTOK: @hildurruti



Comments


bottom of page