RICOTTA PÖNNUKÖKUR MEÐ BLÁBERJUM & SÍTRÓNU
- Mar 1
- 1 min read
Við elskum þessar pönnukökur! Ricotta osturinn gerir þær svo mjúkar og léttar og bláberin með sítrónunni gefa þeim ótrúlega ferskt bragð. Mæli með að prófa þessar ef þið viljið eitthvað aðeins öðruvísi en þessar venjulegu pönnukökur.

2,4 dl hveiti
2 msk sykur
2 tsk lyftiduft
½ tsk salt
2 dl mjólk
85 g smjör, brætt
2 egg, aðskilin (hvítur og rauður í sitthvora skálar)
1 tsk vanilludropar
170 g ricotta ostur
1 tsk fínt rifin sítrónubörkur
150 g fersk Driscoll's bláber
Aðferð:
1. Hrærið saman hveiti, sykur, lyftiduft og salt í stórri skál.
2. Í annarri skál, þeytið saman mjólk, brætt smjör, eggjarauður, vanillu og ricotta. Blandan má vera aðeins kekkjótt — það er allt í lagi.
3. Hellið blautu blöndunni út í þurrefnin og blandið varlega saman með sleikju þar til deigið hefur sameinast. Ekki hræra of mikið.
4. Í hreinni skál, þeytið eggjahvítur þar til mjúkir toppar myndast og blandið þeim svo varlega saman við deigið. Þetta gerir pönnukökurnar extra léttar.
5. Bætið sítrónuberki og bláberjum út í og blandið varlega saman.
6. Steikið á meðalheitri pönnu með smá smjöri eða olíu þar til loftbólur myndast á yfirborðinu. Snúið og steikið áfram í 1–2 mínútur.


Verði ykkur að góðu & njótið! ❤️
// HILDUR RUT
INSTAGRAM: @hildurrutingimars
TIKTOK: @hildurruti
Samstarf við Innnes







Comments